Ferill 800. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1595  —  800. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 41/2013, um heimild til handa ráðherra,
f.h. ríkissjóðs, til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi
í landi Bakka í Norðurþingi, með síðari breytingum (fjárheimild).

Frá minni hluta atvinnuveganefndar.


    Minni hlutinn er ekki andsnúinn áfram­haldandi uppbyggingu á Bakka en telur hins vegar ámælisvert að fella brott þá fjárhæð til verkefnisins sem upphaflega var samþykkt á Alþingi enda glatast þar með nauðsynlegt aðhald í ríkisfjármálum.
    Upphaflega var lögfest 1.800 millj. kr. framlag til að gera vegtengingu milli Húsa­víkurhafnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka miðað við verðlag ársins 2012. Nú er ráðgert að verkefnið kosti 3.100 millj. kr. Því er ljóst að ekki var vandað nægilega vel til undirbúnings í upphafi. Jafnframt er engin trygging fyrir því að framkvæmdirnar verði ekki enn kostnaðarsamari með tilheyrandi byrði á fjárhag ríkisins. Með því að fella fjárhæðina brott úr lögunum, líkt og meiri hlutinn hefur lagt til, er framkvæmdarvaldinu ekki veitt nægilegt aðhald. Það er sérstaklega ámælisvert þegar reikningurinn fyrir umframkostnaði sem þessum er sendur skattgreiðendum landsins.
    Minni hlutinn telur vinnubrögð sem þessi óásættanleg og getur því ekki stutt frumvarpið.

Alþingi, 1. júlí 2015.

Eldar Ástþórsson.