Ferill 26. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Prentað upp.

Þingskjal 26  —  26. mál.
Leiðréttur texti.




Tillaga til þingsályktunar


um dag helgaðan fræðslu um mannréttindi barna.


Flm.: Páll Valur Björnsson, Valgerður Bjarnadóttir, Karl Garðarsson,
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Elín Hirst, Birgitta Jónsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra í samráði við mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir því að 20. nóvember, dagurinn sem barnasáttmálinn var samþykktur, verði ár hvert helgaður fræðslu um mannréttindi barna í skólum landsins.

Greinargerð.

    Tillaga sama efnis var lögð fram á 144. löggjafarþingi (397. mál) og er endurflutt óbreytt.
    Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, barnasáttmálinn eins og hann er oftast kallaður, var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. Hann var undirritaður fyrir Íslands hönd árið 1990 og fullgiltur árið 1992. Sáttmálinn boðar nýja sýn á stöðu barna í samfélaginu. Sáttmálinn skilgreinir börn sem viðkvæman hóp sem hefur sérstaka þörf fyrir vernd og umönnun. Samhliða því gengur sáttmálinn út frá að börn séu fullgildir og hæfir einstaklingar sem búi yfir viðhorfum og reynslu sem feli í sér verðmæti fyrir samfélagið. Það var mikið fagnaðarefni þegar Alþingi ákvað einróma að lögfesta barnasáttmálann í febrúar 2013, sbr. lög nr. 19/2013, um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Ísland hefur þannig viðurkennt sáttmálann með afdráttarlausum hætti en lögfesting hans felur í sér skýra stefnuyfirlýsingu um forgangsröðun með tilliti til réttinda barna.
    Samkvæmt barnasáttmálanum ber aðildarríkjum að kynna efni hans með virkum hætti fyrir börnum sem og fullorðnum. Grundvallarforsenda fyrir innleiðingu sáttmálans er að fólk, börn jafnt sem fullorðnir, þekki réttindi barna og geti sett þau í samhengi við daglegt líf og starf. Einhver helsta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi er að auka þekkingu á innihaldi barnasáttmálans. Kannanir meðal barna sýna að íslensk börn hafa takmarkaða þekkingu á réttindum sínum og vissa tilhneigingu til að rugla saman grundvallarhugtökum á borð við „forréttindi“ og „réttindi“. Til að fullorðnir og börn geti átt innihaldsrík samtöl um mannréttindi á jafningjagrundvelli er þörf fyrir markvissari fræðslu. Eitt mikilvægasta skrefið í þá átt er að skapa umræðu um réttindi og fræða einstaklinga um birtingarmynd réttinda í daglegu lífi. Þannig gerum við börn meðvituð um eigin réttindi og komum þeim í skilning um að aðrir eigi sömu réttindi.
    20. nóvember 2014 var 25 ára afmæli barnasáttmálans fagnað og í tilefni þessara merku tímamóta telja flutningsmenn mikilvægt að veita réttindum barna aukið vægi. Því er lagt til að Alþingi ákveði að fela innanríkisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra að beita sér fyrir því að dagurinn sem barnasáttmálinn var samþykktur, 20. nóvember, verði ár hvert helgaður fræðslu um mannréttindi barna í skólum landsins. Sérstakur fræðsludagur um mannréttindi barna er mikilvægt skref í þá átt að auka þekkingu barna á réttindum sínum. Má í því sambandi einnig benda á að árið 2005 samþykktu öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal Ísland, að efla kennslu um mannréttindi í skólum. Árið 2008 voru ný lög um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla samþykkt á Alþingi og nýjar aðalnámskrár fyrir öll skólastigin voru samþykktar árið 2011. Aðalnámskrá á að vera rammi utan um skólastarfið, birta heildarsýn um menntun og útfæra nánar þá menntastefnu sem felst í lögunum. Sú menntastefna sem birtist í aðalnámskrá grunnskóla er reist á sex grunnþáttum menntunar. Þessir grunnþættir eru læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Auk þess að vera byggð á lögum um grunnskóla byggist aðalnámskrá á ýmsum öðrum lögum og alþjóðlegum samningum, þar á meðal barnasáttmálanum. Það fellur vel að markmiðum skólalöggjafar og aðalnámskráa að veita mannréttindum barna aukið vægi og halda fræðsludag um mannréttindi barna ár hvert, hinn 20. nóvember, á deginum sem barnasáttmálinn var samþykktur.