Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 370 — 320. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um túlkun ákvæða í lögum nr. 94/1986,
um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Er enn við lýði túlkun á lögum nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, þar sem fjallað er um launagreiðslur í verkfalli, og birt var í dreifibréfi starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins nr. 6/2001 og var þessari túlkun beitt í kjaradeilu ljósmæðra við ríkið vorið 2015?
2. Hver er texti umræddrar túlkunar á 19. og 20. gr. laga nr. 94/1986 og er hann aðgengilegur hjá ráðuneytinu?
Skriflegt svar óskast.