Ferill 517. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 820  —  517. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um endurskoðun reglugerðar um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða, nr. 369/2000.

Frá Páli Val Björnssyni.


    Hyggst ráðherra endurskoða reglugerð um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða, nr. 369/2000, sbr. einkum 2. mgr. 4. gr., í því skyni að draga úr þörf á endurnýjun umsókna um stæðiskort fyrir hreyfihamlaða hjá þeim hópi fólks sem er með varanlega fötlun eða sjúkdóm?