Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 821  —  518. mál.




Fyrirspurn



til félags- og húsnæðismálaráðherra um endurskoðun á reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna, nr. 504/1997.

Frá Páli Val Björnssyni.


    Hyggst ráðherra endurskoða reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna, nr. 504/1997, sbr. einkum 3. mgr. 6. gr., í því skyni að draga úr þörf á endurnýjun umsókna um aðstoð vegna þess hóps barna sem er með varanlega fötlun eða sjúkdóm?