Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 840  —  432. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Aðalheiði I. Þorsteinsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2015, frá 10. júlí 2015, um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/123/EB frá 21. október 2009 um breytingu á tilskipun 2005/35/EB um mengun sem á upptök sín um borð í skipum og innleiðingu viðurlaga við brotum. Sex mánaða frestur samkvæmt EES-samningnum til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 10. janúar 2016. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Tilskipun 2005/35/EB var tekin upp í EES-samninginn 2009. Sú breyting sem tilskipun 2009/123/EB felur í sér er að lögð er frekari áhersla á að gera brot gegn reglum um mengun hafs frá skipum refsiverð samkvæmt hegningar- eða sérrefsilögum. Refsiábyrgðin getur tekið jafnt til einstaklinga og lögaðila og skilyrði slíkrar ábyrgðar eru almenn saknæmisskilyrði, ásetningur eða stórfellt gáleysi ásamt því að verknaður rýri vatnsgæði. Ekki er gert ráð fyrir að refsað sé fyrir smávægileg brot sem rýra ekki vatnsgæði en ítrekuð brot leiða þó til refsiábyrgðar.
    Tilskipunin felur ekki í sér skilyrði um beitingu (e. application) og lögsaga hennar er háð löggjöf hvers ríkis um sig. Tilskipunin kveður þannig einungis á um hvers konar umhverfisbrot skuli talin refsiverð, hverjir skuli bera refsiábyrgð og hvers konar þátttaka í brotum skuli talin refsiverð.
    Refsilöggjöf er ekki hluti af EES-samningnum en þar sem gerðin er breyting á tilskipun 2005/35/EB sem þegar hefur verið tekin upp í EES-samninginn og markmið tilskipunarinnar er að samræma refsiákvæði við brotum gegn þeirri löggjöf var gerð aðlögun við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn þar sem því var m.a. lýst yfir að upptaka gerðarinnar hefði ekki fordæmisgildi hvað varðaði aðra löggjöf sem innihéldi refsiákvæði.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á breytingu á lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda. Þá þarf að meta hvort gera þurfi breytingar á samstarfi umhverfisyfirvalda, lögreglu og ákæruvalds þegar um refsiverð umhverfisbrot er að ræða. Loks mun þurfa aukna fjárveitingu til lögreglu til að unnt sé að rannsaka þau brot sem tilkynnt er um í samræmi við markmið tilskipunarinnar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Elín Hirst og Karl Garðarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 16. febrúar 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form.
Steinunn Þóra Árnadóttir,
frsm.
Frosti Sigurjónsson.
Óttarr Proppé. Silja Dögg Gunnarsdóttir. Vilhjálmur Bjarnason.
Össur Skarphéðinsson.