Ferill 683. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1308  —  683. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Kjartansdóttur frá utanríkisráðuneyti og Eggert Ólafsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 252/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 210/2013 frá 11. mars 2013 um samþykki fyrir starfsstöðvum, sem framleiða spírur, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004.
    Með reglugerðinni eru settar kröfur um að spíruframleiðendur þurfi starfsleyfi áður en þeir hefja starfsemi og til að öðlast slíkt starfsleyfi þurfi þeir að uppfylla ákveðnar kröfur sem tilteknar eru í reglugerðinni. Kröfurnar varða einna helst hönnun og skipulag starfsstöðvar sem þarf að vera þannig að koma megi við vörnum gegn mengun milli vinnslustiga eða meðan vinnsla stendur yfir. Gerð er krafa um að auðvelt sé að þrífa starfsstöð og allan búnað og fullnægjandi aðstaða sé til að þrífa, sótthreinsa og geyma áhöld og skola matvæli ef þess þarf. Áður en starfsleyfi er veitt skal fara fram úttekt á starfsstöð og gengið úr skugga um að kröfur séu uppfylltar. Kostnaður vegna leyfisúttekta fellur á framleiðendur en fyrir nefndinni kom fram að ekki væri um háan kostnað að ræða og að unnið yrði í samræmi við fyrri tilmæli hennar um að útgáfa starfsleyfa yrði ekki óþarflega íþyngjandi fyrir framleiðendur. Tilmælunum var beint til utanríkisráðuneytis eftir umfjöllun nefndarinnar um upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn, sbr. 2. gr. reglna Alþingis um þinglega meðferð EES-mála.
    Reglugerðin er tilkomin vegna þess að upp komu nokkur kólígerlasmit í Evrópu í maí 2011. Smitið var rakið til spíra en meðan á spírun stendur geta myndast kjöraðstæður fyrir kólíbakteríur til að fjölga sér. Reglugerðin var því sett til að tryggja matvælaöryggi og til verndar heilbrigði almennings.
    Gera þarf breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli, til að innleiða reglugerðina þar sem ekki er kveðið á um það í gildandi lögum að starfsleyfi þurfi fyrir framleiðslustöð spíra. Í athugasemdum með tillögunni kemur fram að gert sé ráð fyrir því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á framangreindum lögum á yfirstandandi þingi.
    Nefndin leggur til að málið verði samþykkt.
    Vilhjálmur Bjarnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Össur Skarphéðinsson og Óttarr Proppé voru einnig fjarverandi en rita undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Alþingi, 19. maí 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form., frsm.
Karl Garðarsson. Frosti Sigurjónsson.
Elín Hirst. Óttarr Proppé. Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Steinunn Þóra Árnadóttir. Össur Skarphéðinsson.