Ferill 790. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1366 — 790. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um framsal íslenskra fanga.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
1. Er unnt að koma á framsali íslenskra fanga erlendis til afplánunar á Íslandi án þess að fyrir liggi sérstakur framsals- eða fangaflutningasamningur við viðkomandi land?
2. Áformar utanríkisráðuneytið að koma á slíkum samningi milli Íslands og Brasilíu?