Ferill 667. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1438  —  667. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld
(tryggingagjald, samsköttun milli skattþrepa o.fl.).

(Eftir 2. umræðu, 2. júní.)


I. KAFLI


Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.

1. gr.

    Í stað „5,90%“ í 3. mgr. 2. gr. laganna kemur: 5,40%.

II. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
2. gr.

    2. mgr. 53. gr. a laganna fellur brott.

3. gr.

    Á eftir orðunum „skal fylgja undirritaður ársreikningur“ í 2. málsl. 1. mgr. 90. gr. laganna kemur: með sundurliðunum og skýringum.

III. KAFLI

     Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987,
með síðari breytingum.

4. gr.

     4. mgr. 11. gr. laganna fellur brott.

IV. KAFLI
    Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
5. gr.

    Orðin ,,eða greiðsla farið fram þá að hluta eða fullu“ í 2. málsl. ákvæðis til bráðabirgða XXX í lögunum falla brott.

6. gr.

    Á undan tollskrárnúmerunum 2204.1021–2204.1029 í h-lið viðauka við lögin kemur: 2203.0091–2203.0099.

V. KAFLI
    Breyting á lögum um fjársýsluskatt, nr. 165/2011.
7. gr.

    Á eftir 5. mgr. 10. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Gjalddagi ógreidds fjársýsluskatts og fjársýsluskatts sem undanþeginn er staðgreiðslu er 1. nóvember ár hvert og eindagi mánuði síðar.

VI. KAFLI
    Breyting á tollalögum, nr. 88/2005,
með síðari breytingum.

8. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 104. gr. laganna :
     a.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að bjóða öðrum vörur verslunarinnar til sölu.
     b.      Á eftir orðunum „skv. 2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: þar á meðal áfengi og tóbak.

VII. KAFLI
     Breyting á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995,
með síðari breytingum.
9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      5. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af samtals 6 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli sem ferðamenn hafa meðferðis til landsins.
     b.      6. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af samtals 11 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli sem skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila hafa meðferðis eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð. Af samtals 6 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli hafi ferð varað skemur en 15 daga. Skipstjóra, yfirstýrimanni, yfirvélstjóra og bryta, svo og matsveinum á farþega- og vöruflutningaskipum, er jafnframt heimilt að taka gjaldfrjálst aukalega til risnu um borð jafnstóran skammt og þeir mega hafa gjaldfrjálst samkvæmt þessum lið.
     c.      7. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af samtals 5 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli sem flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaáhöfn, hafa meðferðis, eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð. Af samtals 3 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli hafi ferð varað skemur en 15 daga.
     d.      2. mgr. orðast svo:
                 Með einingu skv. 5.–7. tölul. 1. mgr. er átt við:
                  1.      Hverja 0,25 lítra af sterku áfengi, þ.e. áfengi sem í er meira en 21% af vínanda að rúmmáli.
                  2.      Hverja 0,75 lítra af léttvíni, þ.e. áfengi annað en öl sem í er 21% eða minna af vínanda að rúmmáli.
                  3.      Hverja 3 lítra af öli, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 3. gr.
                  4.      Hverja 3 lítra af gosvíni, gerjaðri drykkjarvöru eða blöndu gerjaðra drykkjarvara og óáfengra drykkja sem flokkast undir vöruliði 2206 og 2208 enda sé varan að hámarki 6% að styrkleika.

10. gr.

    Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda sem hér segir:
    Ákvæði 1. gr. öðlast gildi og kemur til framkvæmda 1. júlí 2016.
    Ákvæði 2.–4. og 7.–9. gr. öðlast gildi og koma til framkvæmda nú þegar.
    Ákvæði 5. og 6. gr. öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 2016.