Ferill 150. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1474  —  150. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um uppbyggingu áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hrein Haraldsson frá Vegagerðinni og Helenu Karlsdóttur frá Ferðamálastofu í síma. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Ferðamálastofu, Fljótsdalshéraði og Vegagerðinni.
    Með tillögunni er innanríkisráðherra falið að skipa starfshóp um áningarstaði við þjóðvegi sem geri tillögu um uppbyggingu, hlutverk og þróun áningarstaða Vegagerðarinnar við þjóðvegi landsins, m.a. með tilliti til salernisaðstöðu. Starfshópnum er í tillögunni einnig falið að meta hvort fjölga beri áningarstöðum Vegagerðarinnar og gera tillögur um forgangsröðun í uppbyggingu áningarstaða og meta kostnað við uppbyggingu þeirra.
    Eins og fram kemur í greinargerð tillögunnar eru áningarstaðir Vegagerðarinnar 469 talsins vítt og breitt um landið en þeir eru misjafnir að umfangi. Sumir eru einfaldlega malbikuð vegútskot en aðrir eru með aðstöðu til áningar með bekkjum og upplýsingaskiltum og eru þeir um 200 talsins. Á 27 þeirra er salernisaðstaða. Áningarstaðir geta gegnt mikilvægu öryggishlutverki með fjölgun ferðamanna á þjóðvegum landsins en borið hefur á því að ferðamenn stöðvi bíla sína úti í vegkanti til að virða fyrir sér náttúru og landslag en af slíku skapast hætta fyrir vegfarendur. Áningarstaðirnir eru kjörnir til slíkra stoppa og þurfa þess vegna að vera vel staðsettir með tilliti til útsýnis og öryggisþátta. Á fundi nefndarinnar var nokkuð fjallað um salernismál en tillagan gerir m.a. ráð fyrir uppbyggingu salernisaðstöðu á áningarstöðum Vegagerðarinnar. Með þeirri miklu fjölgun ferðamanna sem orðið hefur hér á landi á síðustu árum og er fyrirsjáanleg á þessu og næsta ári er þörf á fleiri almenningssalernum víða um land. Síðasta sumar bárust af því fréttir reglulega að ferðamenn gengu örna sinna á óheppilegum stöðum með tilheyrandi óþrifnaði og neikvæðri upplifun sem því fylgir. Á þjóðvegum landsins er á mörgum stöðum langt á milli almenningssalerna og því mikilvægt að komið verði upp viðunandi aðstöðu til að bregðast við því ástandi sem fyrirsjáanlegt er að komi upp í sumar. Engan tíma má missa úr því sem komið er.
    Á fundi nefndarinnar kom fram að óheppilegt væri að skipa starfshóp um þetta tiltekna verkefni þar sem nú þegar væri unnið að því innan stjórnsýslunnar að vissu leyti. Nefndin tekur undir þetta og í ljósi þess að nú er komið sumar og ferðamönnum farið að fjölga verulega er ljóst að grípa þarf til aðgerða strax. Á fundi nefndarinnar upplýsti vegamálastjóri um áætlun sem unnin var hjá Vegagerðinni um að koma upp bráðabirgðasalernisaðstöðu á u.þ.b. 30 stöðum. Ljóst er að slík aðstaða er ekki til framtíðar og mikilvægt að huga að framtíðaruppbyggingu viðunandi og viðvarandi salernisaðstöðu. Hins vegar verður að bregðast við ástandinu nú og leggur nefndin því til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og verði hluti af vinnu að öryggismálum á vegum Stjórnstöðvar ferðamála með það að markmiði að bráðabirgðaaðstöðu verði komið upp í sumar og að því búnu verði hugað að varanlegri uppbyggingu áningarstaða.
    Nefndin leggur til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 2. júní 2016.

Höskuldur Þórhallsson,
form., frsm.
Katrín Júlíusdóttir. Haraldur Einarsson.
Birgir Ármannsson. Elín Hirst. Ásta Guðrún Helgadóttir.
Svandís Svavarsdóttir. Róbert Marshall. Vilhjálmur Árnason.