Ferill 824. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1602 — 824. mál.
Svar
innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Helga Hrafni Gunnarssyni um kynferðisbrot á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2016.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margar tilkynningar um kynferðisbrot annars vegar og kærur vegna kynferðisbrota hins vegar bárust lögregluyfirvöldum í tengslum við þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2016?
Í tilefni af fyrirspurninni óskaði ráðuneytið eftir umsögn embættis lögreglustjórans í Vestmannaeyjum. Í umsögn embættisins, dags. 23. ágúst 2016, kemur fram að eitt kynferðisbrot, sem átti sér stað í umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum á tímabilinu 28. júlí 2016 til 1. ágúst 2016, var tilkynnt til lögregluyfirvalda. Í umsögninni kemur enn fremur fram sundurliðun á því hvenær brotið átti sér stað, hvar og hvenær það var kært:
01.08.2016: Kynferðisbrot, nauðgun, kært 01.08.2016 hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum.