Ferill 864. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 1671  —  864. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2016 um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Katrínu Vilhjálmsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Guðrúnu Ögmundsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES­nefndarinnar nr. 97/2016, frá 29. apríl 2016, um breytingu á XVI. viðauka (Opinber innkaup) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn þrjár tilskipanir á sviði opinberra innkaupa, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/23/ESB frá 26. febrúar 2014 um gerð sérleyfissamninga, tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB frá 26. febrúar 2014 um opinber innkaup og niðurfellingu tilskipunar 2004/18/EB, og tilskipun Evrópu­þingsins og ráðsins 2014/25/ESB frá 26. febrúar 2014 um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu og um niðurfellingu tilskipunar 2004/17/EB.
    Helsta markmiðið með tilskipunum 2014/24/ESB og 2014/25/ESB er að tryggja gagnsæi og jafnt aðgengi og auka samkeppni um opinbera samninga á Evrópska efnahagssvæðinu. Markmiðið með tilskipun 2014/23/ESB er að koma á heildstæðum reglum um sérleyfis­samninga þar sem slíkir samningar eru skilgreindir með skýrum og nákvæmum hætti vegna erfiðleika sem upp hafa komið við að greina á milli sérleyfissamninga og annarra opinberra innkaupa.
    Í athugasemdum með tillögunni kemur fram að innleiðing gerðanna þriggja kalli á heildar­endurskoðun núgildandi löggjafar um opinber innkaup. Fjármála- og efnahagsráðherra hafi nú þegar lagt fram frumvarp til nýrra laga um opinber innkaup sem fela í sér innleiðingu á tilskipununum þremur, 665. mál, og hefur það verið til umfjöllunar í fjárlaganefnd frá því í maí sl. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fór þess á leit við nefndina í júlí sl. að stjórnskipu­legum fyrirvara yrði aflétt með lagaákvæði líkt og heimilt er samkvæmt reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála.
    Meginreglan er sú að stjórnskipulegum fyrirvara af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefnd­arinnar verði aflétt með ályktun Alþingis og að utanríkisráðherra leggi tillögu um slíka þingsályktun fram. Nefndin áréttar að stjórnskipulegum fyrirvara hefur ekki verið aflétt með lagaákvæði í fjölda ára enda hafi breytingar verið gerðar á framangreindum reglum árið 2010 sem ætlað var að tryggja samræmda framkvæmd við mál sem þessi og meiri yfirsýn utan­ríkismálanefndar. Mikilvægt er að þingið taki skýra afstöðu til þess hverju sinni hvort aflétta eigi stjórnskipulegum fyrirvara Evrópugerða og því brýnt að sérstök tillaga þess efnis fái ávallt þinglega meðferð.
    Nefndin leggur til að málið verði samþykkt óbreytt.
    Frosti Sigurjónsson, Óttarr Proppé og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
     Óttarr Proppé skrifar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.
    Ásta Guðrún Helgadóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 14. september 2016.

Hanna Birna Kristjánsdóttir,
form.
Vilhjálmur Bjarnason,
frsm.
Karl Garðarsson.
Elín Hirst. Óttarr Proppé,
með fyrirvara.
Steinunn Þóra Árnadóttir.
Össur Skarphéðinsson.