Fundargerð 146. þingi, 0. fundi, boðaður 2016-12-06 14:00, stóð 14:04:56 til 14:24:50 gert 6 15:21
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 6. des.

Árið 2016, þriðjudaginn 6. desember, var hundrað fertugasta og sjötta löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og nítjánda aðalþing í röðinni en hundrað sextugasta og fyrsta samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu, anddyri Skálans, kl. 1.10 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur predikaði. Séra Sveinn Valgeirsson þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n.
  2. Ari Trausti Guðmundsson, 6. þm. Suðurk.
  3. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 4. þm. Reykv. n.
  4. Ásmundur Friðriksson, 3. þm. Suðurk.
  5. Ásta Guðrún Helgadóttir, 3. þm. Reykv. s.
  6. Benedikt Jóhannesson, 10. þm. Norðaust.
  7. Birgir Ármannsson, 8. þm. Reykv. n.
  8. Birgitta Jónsdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  9. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  10. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Suðvest.
  11. Björn Leví Gunnarsson, 7. þm. Reykv. n.
  12. Björt Ólafsdóttir, 9. þm. Reykv. n.
  13. Bryndís Haraldsdóttir, 2. þm. Suðvest.
  14. Brynjar Níelsson, 4. þm. Reykv. s.
  15. Einar Brynjólfsson, 7. þm. Norðaust.
  16. Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvest.
  17. Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þm. Norðvest.
  18. Eygló Harðardóttir, 9. þm. Suðvest.
  19. Guðjón S. Brjánsson, 8. þm. Norðvest.
  20. Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n.
  21. Gunnar Hrafn Jónsson, 7. þm. Reykv. s.
  22. Gunnar Bragi Sveinsson, 2. þm. Norðvest.
  23. Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n.
  24. Hanna Katrín Friðriksson, 5. þm. Reykv. s.
  25. Haraldur Benediktsson, 1. þm. Norðvest.
  26. Jón Gunnarsson, 6. þm. Suðvest.
  27. Jón Þór Ólafsson, 3. þm. Suðvest.
  28. Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest.
  29. Jóna Sólveig Elínardóttir, 9. þm. Suðurk.
  30. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  31. Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykv. s.
  32. Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðaust.
  33. Lilja Alfreðsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
  34. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvest.
  35. Logi Már Einarsson, 9. þm. Norðaust.
  36. Nichole Leigh Mosty, 10. þm. Reykv. s.
  37. Njáll Trausti Friðbertsson, 4. þm. Norðaust.
  38. Oddný G. Harðardóttir,10. þm. Suðurk.
  39. Óli Björn Kárason, 8. þm. Suðvest.
  40. Ólöf Nordal, 1. þm. Reykv. s.
  41. Óttarr Proppé, 7. þm. Suðvest.
  42. Pawel Bartoszek, 11. þm. Reykv. s.
  43. Páll Magnússon, 1. þm. Suðurk.
  44. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  45. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust.
  46. Sigríður Á. Andersen, 8. þm. Reykv. s.
  47. Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk.
  48. Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurk.
  49. Smári McCarthy, 4. þm. Suðurk.
  50. Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðaust.
  51. Steinunn Þóra Árnadóttir, 6. þm. Reykv. n.
  52. Svandís Svavarsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  53. Teitur Björn Einarsson, 7. þm. Norðvest.
  54. Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þm. Suðvest.
  55. Unnur Brá Konráðsdóttir, 8. þm. Suðurk.
  56. Valgerður Gunnarsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  57. Vilhjálmur Árnason, 5. þm. Suðurk.
  58. Vilhjálmur Bjarnason, 11. þm. Suðvest.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 4. þm. Suðvest.
  60. Þorsteinn Víglundsson, 5. þm. Reykv. n.
  61. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 4. þm. Norðvest.
  62. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 10. þm. Suðvest.
  63. Þórunn Egilsdóttir, 5. þm. Norðaust.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:04]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 6. desember.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannesson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.


Ávarp aldursforseta.

[14:18]

Horfa

Aldursforseti, Steingrímur J. Sigfússon, ávarpaði þingheim.

Strengjakvartett flutti lagið Ísland ögrum skorið.


Kosning kjörbréfanefndar.

[14:22]

Horfa

Kjörbréfanefnd var svo skipuð:

Birgir Ármannsson,

Ásmundur Friðriksson,

Björn Leví Gunnarsson,

Björt Ólafsdóttir,

Hanna Katrín Friðriksson,

Lilja Rafney Magnúsdóttir,

Oddný G. Harðardóttir,

Silja Dögg Gunnarsdóttir,

Teitur Björn Einarsson.

Fundi frestað kl. 14:24.

---------------