Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 60  —  1. mál.

2. umræða.

                                  

Nefndarálit


um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017.

Frá 5. minni hluta fjárlaganefndar.


    Fimmti minni hluti áréttar þau markmið sem fjárlaganefnd leggur til í sameiginlegri breyt­ingartillögu við fjárlagafrumvarpið. Nú eru sérstakar aðstæður á þingi, starfsstjórn og enginn skýr meiri hluti. Þrátt fyrir það, eða kannski vegna þess, vann nefndin mjög vel saman og af heilum hug að því að skila af sér breytingum við fjárlagafrumvarpið sem allir gátu sammælst um að væru nauðsynlegar. Minni hlutinn lagði sérstaka áherslu á að nefndin og þingið skilaði af sér fjárlagafrumvarpi sem byndi ekki hendur næstu ríkisstjórnar til þess að geta hafið nauðsynlegar aðgerðir miðað við þær áherslur sem sú ríkisstjórn mundi setja sér. Almennt séð ætti fráfarandi ríkisstjórn að skila af sér fjárlagafrumvarpi sem veitti svigrúm fyrir þá ríkisstjórn sem tekur við til að geta strax látið til sín taka í þeim málefnum sem hún leggur áherslu á.

Verklag nefndarinnar.
    Vegna þess hversu seint fjárlagafrumvarpið var lagt fram á Alþingi sammæltist nefndin um að skila af sér breytingum í nokkrum málaflokkum, heilbrigðismálum, menntamálum, samgöngumálum og löggæslumálum ásamt því að leggja til breytingar á tekjuáætlun til móts við útgjaldatillögur í framangreindum málaflokkum.
    Nefndin fékk mjög stuttan tíma til þess að fara yfir umsagnir og til þess að ná einhverri heildarsýn yfir frumvarpið. Þar hjálpuðu þó ný lög um opinber fjármál þar sem efnisleg umræða hafði þegar farið fram um fjármálaáætlun ársins 2017. Nýtt verklag stangaðist hins vegar dálítið á við eldra verklag og í sameiningu urðu framangreind atriði, þ.e. hversu seint frumvarpið var lagt fram, hversu stuttan tíma nefndin fékk til þess að fjalla um frumvarpið og að fjárlagafrumvarp var í fyrsta sinn afgreitt eftir nýjum lögum um opinber fjármál, til þess að meðferð nefndarinnar á frumvarpinu hefði getað verið betri. Þrátt fyrir þessar að­stæður voru nefndarmenn afar lausnamiðaðir og fóru mjög ítarlega yfir umsagnir ráðuneyta og þá málaflokka sem nefndin valdi að leggja áherslu á. Vegna þessara aðstæðna verður enn ríkari ástæða til þess að fylgja eftirliti með framkvæmd fjárlaga mjög vel á eftir eins og er tilgreint sem markmið í 1. gr. laga um opinber fjármál.

Löggæsla.
    Gerð er breytingartillaga á málefnasviði almanna- og réttaröryggis upp á 500 millj. kr. Vegna aukins álags, m.a. vegna fjölgunar ferðamanna, og nauðsynjar þess að hafa virka hálendisvakt þótti nauðsynlegt að veita meira fé til þessara mála.

Samgöngur.
    Nefndin fékk það áhugaverða hlutverk að fjármagna nýsamþykkta samgönguáætlun Alþingis við þær aðstæður sem áður hafa verið útskýrðar. Þar hafði nefndin til hliðsjónar forgangsröðun Vegagerðarinnar og lagði þar að auki áherslu á viðbótarframlag til viðhalds upp á 2.500 millj. kr. Verkefnin eru mörg og brýn. Nefndin hefði tvímælalaust viljað leggja meira til samgöngumála og verður það verkefni næstu ríkisstjórnar að taka við því verkefni.

Menntamál.
    Samtals leggur nefndin til 1,7 milljarða kr. til viðbótar til framhaldsskóla- og háskóla­stigsins, 400 millj. kr. til framhaldsskólastigsins til þess að brúa það bil sem annars yrði í rekstri þangað til kerfisbreytingu um styttingu skólaárs lýkur.
    Samtals eru lagðir 1,3 milljarðar kr. til háskólastigsins til þess að mæta áætluðum rekstrar­halla og til þess að byggja upp tækjakost skólanna sem hafa þurft að fara sparlega í slíkum útgjöldum á undanförnum árum. Fimmti minni hluti gerir almenna athugasemd við það að fjárveitingar fari til þess að styrkja rekstrargrundvöll skóla sem innheimta skólagjöld af nem­endum sínum sem og að verkefni sem nýtast öllum skólum séu eyrnamerkt einum tilteknum skóla. Það þarf að vinna markvisst að því á næstu árum að uppfæra reiknilíkan.

Heilbrigðismál.
    Mestur tími í vinnu við breytingartillögurnar fór í heilbrigðismál en í nýliðnum kosning­um lögðu flestir flokkar höfuðáherslu á uppbyggingu heilbrigðiskerfisins. Því markmiði verður ekki náð með þessum fjárlögum en það var einlægur vilji nefndarinnar að heilbrigðis­stofnanir hefðu a.m.k. tækifæri til þess byrja á núlli og möguleika á að koma í veg fyrir hallarekstur. Fimmti minni hluti telur, eftir að hafa rýnt í tölurnar og gögnin sem nefndin fékk aðgang að, að því markmiði hafi verið náð. Stofnanir heilbrigðiskerfisins ættu að geta sinnt nauðsynlegri þjónustu við landsmenn án þess að enda í mínus. Það er hins vegar margt sem getur farið úrskeiðis og verður það því verk okkar þingmanna að sinna eftirliti með því hvernig þessum fjármunum sem við leggjum til heilbrigðiskerfisins verður varið. Það er algerlega nauðsynlegt að þeim 500 millj. kr. sem ætlað er til þess að leysa útskriftarvandann verði varið á þann hátt að sjúklingar komist af spítalanum.
    Fimmti minni hluti setti sér það lágmark að fjárlög 2017 skiluðu heilbrigðiskerfinu réttu megin við núllið í rekstrarafkomu. Eftir að hafa farið yfir gögn málsins komst 5. minni hluti að því að sú upphæð þyrfti að vera 7,5 milljarðar kr. Þá upphæð er að finna í fjárlagafrum­varpinu og þeim breytingum sem fjárlaganefnd leggur til við frumvarpið. Þeirri upphæð er skipt á milli nokkurra málefnasviða og málefnaflokka og í sameiningu þurfa margir að ná þeim markmiðum sem sett eru. Mjög lítið þarf út af að bregða til þess að heildarmarkmiðið náist ekki. Píratar verða vægðarlausir í eftirliti með því að þessum fjármunum verði varið á sem skilvirkastan hátt. Ábyrgð framkvæmdarvaldsins í þessu máli er gríðarlega mikil að mati Pírata.

Markmið.
    Nefndin setti sér þau markmið að skila fjárlögum þar sem heilbrigðiskerfið og mennta­kerfið þyrfti ekki að þola hallarekstur. Nefndin taldi að breytingartillögur hennar við frum­varp til fjárlaga fyrir árið 2017 næði því markmiði og að ný ríkisstjórn, hver sem hún yrði, tæki við ásættanlegum rekstri og bætti í eftir áherslum þeirrar ríkisstjórnar. Það var því þannig að allir vildu gera betur, þó á mismunandi sviðum, en nefndin mættist á miðri leið þannig að niðurstaðan yrði ásættanleg fyrir alla aðila.
    Til þess að ná þessum markmiðum var víða leitað lausna, m.a. í lokafjárlögum fyrir árið 2015 og fjáraukalögum fyrir árið 2016, sem og hvernig afla ætti tekna fyrir þeim útgjöldum sem nefndin lagði til. Stundum stóð ansi tæpt á því hvort samkomulag næðist um sameiginlega breytingartillögu. Lengi framan af, á meðan nefndarmenn voru enn að tjá væntingar sínar, var alls ekki ljóst hvort niðurstaða næðist. Það hefði þýtt sjálfstæðar breytingartillögur frá öllum flokkunum sem hefðu líklega ekki skilað neinum breytingum á fjárlagafrumvarpinu að loknum atkvæðagreiðslum um þær breytingar eða að útgjöld hefðu verið samþykkt en engar tekjuleiðir á móti.
    Fimmti minni hlutinn bindur vonir við að breytingartillögurnar skipti sköpum við fram­kvæmd fjárlaga, ekki bara á þeim málefnasviðum sem nefndin einbeitti sér að, heldur að áhrif breytinganna finnist víðar.

Alþingi, 22. desember 2016.

Björn Leví Gunnarsson.