Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 61  —  1. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017.

Frá 6. minni hluta fjárlaganefndar.


    Ekki verður tekist á um hinar stóru pólitísku spurningar við afgreiðslu fjárlaga þetta árið ólíkt því sem tíðkast. Fyrst og fremst stafar það af því að frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017 er lagt fram af starfsstjórn sem ekki styðst við meiri hluta á Alþingi og þess vegna ákváðu þingmenn að ná samkomulagi um tiltekin stór mál, en vænta þess um leið að þegar nýr pólitískur meiri hluti myndast á Alþingi verði fjallað um hinar pólitísku línur í sérstöku fjáraukalagafrumvarpi fyrir árið 2017. Af þessum sökum er margt sem ekki verður fjallað um við afgreiðslu þessa frumvarps og vikið verður nánar að síðar í þessu áliti. En megin­niðurstaðan er að tekist hefur samkomulag um mikilvægar viðbætur til heilbrigðismála, menntakerfis og samgöngumála. Þá ber sérstaklega að geta aukins framlags til skattaeftirlits og skattrannsókna. Aukinheldur er fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017 með nýstárlegum brag sem skýrist af því að frumvarpið er nú lagt fram á grundvelli laga nr. 123/2015, um opinber fjármál, sem öðluðust gildi 1. janúar 2016 og er framsetning þessa meginskjals ríkisfjármál­anna frábrugðin því sem verið hefur.
    Hin nýja framsetning fjárlagafrumvarpsins veldur því að ekki er hlaupið að því að gera samanburð við fyrri fjárlagafrumvörp, fjárlög eða fjáraukalög. Hins vegar er nokkur stuðn­ingur að þingsályktun um fjármálaáætlun fyrir árin 2017–2021 (nr. 55/145) og þingsályktun um fjármálastefnu fyrir árin 2017–2021 (nr. 54/145) sem samþykktar voru sumarið 2016 en í þeim er að finna útlistanir á stefnumiðum og áherslum stjórnvalda í fjármálum hins opin­bera auk markmiðasetningar og spár um þróun opinberra fjármála á gildistíma þeirra. Segja má að inntak og heildarsvipur fjárlagafrumvarpsins hafi verið mótaður með fyrrnefndum þingsályktunum og ber það því öll merki efnahagsstefnu ríkisstjórnar Framsóknar- og Sjálf­stæðisflokks sem sat að völdum á síðasta kjörtímabili og stóð að fyrrnefndum þingsálykt­unum.
    Stefna sérhverrar ríkisstjórnar varðandi tekjuöflun og útgjöld ríkisins er í senn einkenn­andi fyrir heildarmarkmið hennar og afmarkandi fyrir samneysluna og sameiginleg verkefni landsmanna. Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög hvers árs eru mikilvægustu stefnu­mörkunarskjöl stjórnvalda á gildistíma þeirra enda ræðst grunngerð samfélagsins af þeim og á þeim veltur að miklu leyti hvort í samfélaginu ríkir jöfnuður og félagslegt öryggi.
    Eins og áður segir urðu þau tíðindi við afgreiðslu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2017 að víðtækara samkomulag tókst með fulltrúum ólíkra og að ýmsu leyti andstæðra stjórnmálaafla um innihald þeirra en að jafnaði hefur náðst þegar fjárlög eru afgreidd með fyrirframákveðn­um þingmeirihluta sem stendur að baki þeirrar ríkisstjórnar sem leggur fjárlagafrumvarp fram. Þingmenn tókust með þessu á við ábyrgð sína gagnvart samfélaginu og stjórnskipulega skyldu. Málamiðlun var nauðsynleg við ríkjandi aðstæður og þótt samkomulag tækist er það engum vafa undirorpið að 6. minni hluti hefði kosið að haga mörgu með öðrum hætti og lagt aðrar áherslur í samræmi við stefnu flokksins í fjármálum ríkisins og samfélagsmálum en tök voru á að þessu sinni.
    Sérstakar aðstæður kalla hins vegar á málamiðlanir allra flokka og frekari pólitísk umræða bíður þess að ný ríkisstjórn verði mynduð.

Skortir á viðbrögð við þenslu í efnahagskerfinu.
    Efnahagsástand hér á landi einkennist af hagvexti og hefur svo verið frá árinu 2011. Yfirstandandi hagvaxtarskeið er með þeim allra lengstu, jafnvel hið lengsta, sem íslenskt samfélag hefur kynnst og enn fremur hefur hagvöxtur verið mjög ör á sumum tímabilum innan þess, svo sem nú undanfarna mánuði eftir nokkurn slaka árið 2014 og fram á árið 2015. Þannig greinir Hagstofa Íslands frá því að landsframleiðsla á þriðja ársfjórðungi þessa árs varð 10,2% hærri að raungildi en landsframleiðsla sama ársfjórðungs í fyrra og hefur svo mikill vöxtur ekki sést síðan árið 2007 sem oft er nefnt sem dæmi um eitthvert mesta þenslu­ár síðari tíma.
    Veltuaukning hefur orðið á mörgum sviðum, svo sem í allri verslun, byggingarstarfsemi og fasteignasölu að ógleymdum rekstri gisti- og veitingastaða. Orsakir hagvaxtar og þenslu er framar öðru að finna í hinni miklu uppsveiflu ferðaþjónustunnar á undanförnum árum. Ferðaþjónustan aflar þjóðarbúinu mikilla gjaldeyristekna og er því hagvöxturinn drifinn áfram af útflutningi, einkaneyslu og fjármunamyndun. Nú er svo komið að ýmis augljós merki gefa til kynna að efnahagsþenslan keyri úr hófi fram og brýnt sé orðið að reisa skorður við henni eigi ekki illa að fara.
    Áætlanir fráfarandi ríkisstjórnar um ríkisfjármál og stefna í þeim efnum einkenndust af hægri stefnu þar sem slakað var á tekjuöflun ríkisins og stöðugir tekjustofnar ríkissjóðs markvisst rýrðir eða lagðir af. Svo rammt kvað að þessu að á þeim rúmu þremur árum sem kjörtímabil fráfarandi ríkisstjórnar varaði afsöluðu stjórnvöld ríkissjóði tekjum upp á 50 til 60 milljarða kr. Ekki varð það til að bæta úr skák að þær skattkerfisbreytingar sem gerðar voru áttu það sammerkt að koma þeim fyrst og fremst til góða sem búa við góðan efnahag. Skattheimtu ríkisins var með öðrum orðum hagrætt í þágu hinna efnameiri og ríku en á kostnað þeirra sem reiða sig á velferðarkerfið.
    Sjötti minni hluti fellst ekki undir neinum kringumstæðum á forgangsröðun fráfarandi stjórnvalda í skattamálum en telur hana öldungis fráleita við ríkjandi aðstæður í efnahags­málum. Eins og nú horfir er með öllu tilefnislaust að draga úr skattheimtu heldur ætti miklu fremur að beita sköttum til að draga úr þenslunni og ríkissjóði í heild til þrýstingsjöfnunar í hagkerfinu í stað þess að stuðla að vexti í einkaneyslu eins og gert hefur verið. Í þessu sam­bandi er ekki hægt að láta undir höfuð leggjast að minnast þess að fráfarandi ríkisstjórn stóð að mjög sérstakri aðgerð til að auka svigrúm til einkaneyslu sem fólst í höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána á kostnað hinnar sameiginlegu tekjuöflunar. Skal þess og minnst að sterkur grunur er um að þessi dæmalausa ráðstöfun hafi fyrst og fremst bætt hag þeirra sem voru vel settir fyrir en ekki hafa enn fengist svör við spurningum sem fyrir alllöngu var beint til stjórnvalda um þessi mál og er það sannarlega ekki traustvekjandi.
    Sitjandi starfsstjórn hefur takmarkað umboð til stjórnarstarfa og getur ekki tekist á hendur að gera róttækar eða umfangsmiklar ráðstafanir í efnahagsmálum né á öðrum sviðum. Engum getur þó dulist að mikil þörf er fyrir efnahagsráðstafanir sem taka mið af þeim aðstæðum sem nú eru uppi og munu valda knýjandi vanda fyrr en síðar ef ekki verður tekið á þeim af festu. Slíkar ráðstafanir er því miður ekki að finna í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi.

Um starfstíma og verklag fjárlaganefndar og breytt hlutverk fjárlaga.
    Frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2017 var útbýtt á Alþingi 6. desember, langtum síðar en venja er til, en þing kemur að jafnaði saman annan þriðjudag í september og er fjárlagafrum­varp þá lagt fram. Hinn skammi tími sem gefist hefur til umfjöllunar hefur vitaskuld haft áhrif á störf nefndarinnar og einnig frumvarpið að því leyti til að þjóðhagsspá Hagstofu Íslands fyrir nóvember var lögð því til grundvallar. Höfðu flestallir þættir þjóðhagsspár tekið jákvæðum breytingum frá því fyrr á árinu.
    Í ljósi þess hversu knappur starfstími nefndarinnar hefur verið ákvað nefndin að eiga ekki að þessu sinni fundi með fulltrúum einstakra sveitarfélaga og takmarka mjög fundarhöld með fulltrúum einstakra stofnana. Einungis fulltrúar frá Landspítalanum og Vegagerðinni komu á fund nefndarinnar ásamt fulltrúum ráðuneyta. Nefndarmenn hafa lagt á sig mikið starf við að ná saman um fjárlög á þeim nauma tíma sem til þess hefur gefist. Þetta verkefni var að sjálfsögðu margháttuðum vandkvæðum bundið enda mjög ólík sjónarmið uppi meðal nefndarmanna sem koma úr sjö stjórnmálahreyfingum sem eiga fulltrúa á 146. löggjafar­þingi. Engu síður tókst að komast að sameiginlegri niðurstöðu – málamiðlun – sem byggist á faglegu og pólitísku starfi nefndarinnar. Samkomulag náðist um það í nefndinni að beina starfi hennar einkum að fjórum umfangsmiklum málefnasviðum, heilbrigðismálum, mennta­málum, samgöngumálum og löggæslu- og öryggismálum. Í samræmi við þetta voru það eink­um mál sem falla undir þessa flokka sem rædd voru á fundum nefndarinnar en einstakir full­trúar hafa að sjálfsögðu gefið sig að öðrum málum einnig eftir því sem tími þeirra og aðrar kringumstæður hafa leyft.
    Það er sannarlega sérstakt að fyrsta fjárlagafrumvarpið með nýju og gerbreyttu sniði kom til umfjöllunar á vettvangi Alþingis við þær aðstæður sem eru. Telja má fullvíst að margir aðilar innan og utan ríkisgeirans hafi ekki áttað sig fyllilega á hinum gagngeru breytingum sem lög nr. 123/2015, um opinber fjármál, hafa valdið á framsetningu fjárlaga og hlutverki þeirra sem er nú mun takmarkaðra en það var áður þar sem stefnumörkun í ríkisfjármálum fer að mestu fram við gerð fjármálastefnu og fjármálaáætlunar.
    Þar sem myndun nýrrar ríkisstjórnar hefur enn ekki tekist hefur slík stefnumörkun ekki farið fram. Það er hins vegar hlutverk Alþingis, óháð þessu, að samþykkja fjárlög. Víkist þingheimur undan þeirri skyldu sinni er starfsemi ríkisins óðara komin í óefni. 6. minni hluti er engu sáttari við fjármálastefnu fráfarandi ríkisstjórnar nú en fyrir síðustu Alþingskosningar en telur að sá árangur hafi náðst í að bæta úr verstu ágöllum hennar að rétt sé, við ríkjandi aðstæður, að standa að samþykkt breytingartillagna sem miða í rétta átt og greiða götu frum­varpsins.

Veigamestu breytingar fjárlaganefndar.
    Vinstri hreyfingin – grænt framboð lýsir eindregnum stuðningi við þær breytingartillögur sem lagðar eru fram til að bæta stöðu heilbrigðiskerfisins og menntakerfisins. Hér er vissu­lega ekki allur vandi leystur en þessar viðbætur eru mikilvægt skref til að rétta af slaka stöðu heilbrigðis- og menntastofnana. Þá eru viðbætur til samgöngumála vissulega mikilvægar þó að fjarri sé að þær dugi til að fjármagna samgönguáætlun sem samþykkt var á Alþingi fyrir skömmu síðan. Ákveðnar viðbætur eru lagðar til í skattaeftirlit og skattrannsóknir sem er mikilvægt skref til að taka á þeirri meinsemd sem skattaundanskot eru í samfélaginu. Hins vegar er ekki nóg að gert og verður fjallað nánar um það hér.

Málefni aldraðra og öryrkja.
    Tekið skal undir það að þær breytingar sem gerðar voru á fjárhæðum lífeyris í almanna­tryggingakerfinu með lögum nr. 116/2016, um breytingu á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni aldraðra, miðuðu í rétta átt að ýmsu leyti en jafnframt skal bent á að þau ganga allt of skammt í því að tryggja öryrkjum og öldruðum sómasamleg lífskjör. Þetta á sérstaklega við um öryrkja sem ekki hljóta sömu kjarabætur og eftirlaunaþegar og raunar eru kjör þeirra lífeyrisþega sem minnst bera úr býtum engan veginn sæmandi, hvorki fyrir þá né samfélag þeirra. Svo ólánlega tókst til við lagabreytingarnar haustið 2016 að munur á kjörum einstæðra og sambúðar- og hjónafólks jókst þeim síðar­nefndu í óhag. Engin málefnaleg rök styðja það fyrirkomulag og ber að kasta því fyrir róða hið fyrsta.
    Mörgu er enn ábótavant varðandi kjör aldraðra og öryrkja og 6. minni hluti bendir því enn sem fyrr á hið augljósa, að lífeyrisgreiðslur aldraðra og öryrkja eigi að fylgja launaþróun á vinnumarkaði og fjárveitingar til málaflokksins að vera í samræmi við það.

Menning og listir.
    Ljóst er að ástandi mála í sjóðakerfi listgreinanna er stórlega ábótavant og margar mikil­vægar menningarstofnanir eru undirfjármagnaðar. Gera þarf áætlun um fjölgun listamanna­launa og setja nýja sóknaráætlun fyrir skapandi greinar í takt við það sem Bandalag íslenskra listamanna hefur lagt fram.
    Nokkur umræða varð um stöðu bæði safna og smærri verkefna og ákvað nefndin að hækka nokkra liði af því tilefni sem þó rúma aðeins brot af því sem beiðnir voru um.

Skattrannsóknir.
    Ríkisskattstjóri telur að árleg skattaundanskot hérlendis nemi 80 milljörðum kr. miðað við umsvif í samfélaginu. Fleiri aðilar hafa lagt mat á þessa upphæð og talið hana umtalsvert hærri, eins og kemur fram í nýlegri fræðigrein í Nordic Tax Journal.
    Skattsvik eru alvarleg meinsemd í samfélaginu. Því er brýnt að styrkja þær stofnanir ríkisins sem fara með skattaeftirlit og efla þær til rannsókna og viðbragða við skattsvikum. Enginn vafi er á að það mun skila sér margfalt í auknum tekjum til samfélagsins og bætt skattskil verða einnig til að auka sátt og samheldni. Rétt hefði verið að taka fastar á þessum málum og auka fjárveitingar til þeirra meira en raun er á þótt vissulega beri að fagna þeim viðbótum sem fást í málaflokkinn í 2. umræðu.

Kynbundið ofbeldi.
    Kynbundið ofbeldi snertir sláandi stórt hlutfall kvenna á Íslandi og eru úrræðin sem opinberir aðilar á vegum ríkis og sveitarfélaga búa yfir í engu samræmi við alvarleika vanda­málsins. Treysta þarf burði réttarvörslukerfisins til þess að koma lögum yfir kynferðisbrota­menn og tryggja skilvirk úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota. Efla þarf menntun fagstétta og allra þeirra sem veita brotaþolum þjónustu og styrkja þarf lögreglu og ákæruvald. Tryggja þarf að fjármagn til málaflokksins dreifist um landið þannig að þolendum verði tryggð við­eigandi úrræði sama hvar á landinu brotið er á þeim.

Loftslagsmál – kolefnisgjald.
    Loftslagsmál og afleiðingar þeirra eru meðal stærstu úrlausnarefna okkar samtíma. Ábyrg stjórnvöld þurfa að setja sér trúverðuga og metnaðarfulla áætlun um að draga úr losun gróðurhúsategunda, og standa við hana. Kolefnisgjald er samkvæmt rannsóknum einhver áhrifaríkasta leiðin til þess að draga úr slíkri losun, en jafnframt er ljóst að gjaldið er of lágt til þess að það hafi tilætluð áhrif. Samkvæmt skýrslu frá OECD er kolefnisgjald á alþjóðavísu um 80% of lágt til þess að hafa tilætluð áhrif til að draga úr útblæstri. Sú hækkun um 10% sem hér kemur til á kolefnisgjaldi er því að mati Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs ekki nægilega há til þess að þjóna markmiðum um samdrátt í losun kolefna.
    Loftslags- og umhverfismál eru ekki lengur jaðarmálefni, þökk sé einarðri baráttu framsýns umhverfisverndarfólks og framlagi vísinda- og fræðimanna. Ljóst er að efla þarf stöðu þessa málaflokks og styrkja hana langt umfram það sem gert var á síðasta kjörtímabili. Þetta verkefni verður meðal mikilvægustu úrlausnarefna nýrrar ríkisstjórnar.

Umhverfismál – landvarsla.
    Umhverfismál voru því miður ekki meðal þeirra málasviða sem samkomulag varð um að fjalla um í starfi fjárlaganefndar í desember 2016. Málaflokkurinn er þó mikilvægur og margt væri um hann að segja en hér skal látið við það sitja að staða umhverfismála hérlendis er þannig að mikilvægt er að auka fé til umhverfisrannsókna, náttúruverndar og miðlunar upplýsinga um umhverfismál.
    Mikil fjölgun ferðamanna í landinu veldur því að mikilvægt er að efla landvörslu og upp­byggingu innviða í þjóðgörðum. Hin litla hækkun sem verður á fjárveitingum til landvörslu er engan veginn nægileg til að bregðast við brýnni þörf og fjölga heilsársstöðugildum í land­vörslu í samræmi við þá staðreynd að ferðamenn leggja nú leið sína til landsins allan ársins hring.

Löggæsla og sýslumenn.
    Á undanförnum árum hefur álag á löggæsluna aukist jafnt og þétt. Þetta skýrist einkum af stöðnun í fjölda stöðugilda og fjölgun verkefna. Lögreglumenn voru 652 talsins í febrúar 2011 en aðeins 659 á sama tíma 2016.
    Aukinn ferðamannastraumur um landið allt hefur haft mikið að segja um hið aukna álag, ekki síst í umdæmum sem eru fámenn en fá hundruð þúsunda gesta á ári hverju. Meiri um­ferð á vegum landsins og skortur á viðhaldi vega síðustu árin veldur fleiri umferðarslysum en áður, með tilheyrandi álagi fyrir lögregluna um land allt. Nefna verður Keflavík sérstak­lega í þessu samhengi og benda á að fjárveitingar til lögregluembættis Suðurnesja hafa ekki verið í neinu samræmi við vaxandi álag í landamæravörslu og öðrum verkefnum á alþjóða­flugvellinum. Leiðrétta þarf öfugþróun síðustu ára og tryggja að framlög til lögreglunnar verði slík að embættin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og boðið starfsfólki sínu upp á góð starfsskilyrði.
    Þrátt fyrir að auknir fjármunir séu veittir í málaflokkinn í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2017 er óralangt í að staðan geti talist ásættanleg.
    Gera þarf miklar úrbætur á rekstrarumhverfi hinna nýju sýslumannsembætta sem hafa verið vanfjármögnuð allt frá stofnun þeirra árið 2015. Þrátt fyrir sameiginlega niðurstöðu fjárlaganefndar um niðurfellingu uppsafnaðs rekstrarhalla að hluta, sem vissulega lagfærir stöðuna, stendur eftir að fjárþörf embættanna er enn ekki rétt metin og munu þau því búa við viðvarandi hallarekstur ef fjárheimildum til þeirra verður ekki breytt. Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017 leysir ekki þennan vanda og við blasir að leit að lausn hans verður meðal verkefna þeirra stjórnvalda sem að endingu komast til valda og áhrifa.

Barnafjölskyldur og fæðingarorlof.
    Ísland á að vera ákjósanlegur staður fyrir ungt fólk til framtíðar. Tryggja þarf barna­fjölskyldum góðar aðstæður með stuðningi í formi barnabóta og lengra fæðingarorlofs. Hækka þarf barnabætur og draga verulega úr tekjuskerðingu þeirra til jöfnunar á aðstæðum barnafólks. Sú hækkun á þaki sem tók gildi í október sl. er til bóta, en lenging orlofsins í 12 mánuði er forgangsmál og mikilvægt framlag ríkisins í því mikla hagsmunamáli foreldra að bil á milli fæðingarorlofs og dagvistunar verði brúað.

Samgönguáætlun.
    Afar brýnt er að fjármagna að fullu samgönguáætlun til fjögurra ára (þál. nr. 65/145) sem Alþingi samþykkti mótatkvæðalaust haustið 2016 og fól það í sér að verja skyldi allt að 100 milljörðum kr. til samgöngubóta á gildistíma hennar.
    Samgöngukerfið hefur verið vanrækt á undanförnum árum að því marki að öryggi veg­farenda er teflt í tvísýnu verði ekki ráðist í nauðsynlegar úrbætur. Það er mat 6. minni hluta að fjárþörf til þessa málaflokks sé að lágmarki 13 milljarðar kr., í nauðsynlegar nýbyggingar, öryggismál og viðhald á vegum. Álagið á vegakerfið hefur stóraukist á undanförnum árum með þungaflutningnum og stórauknum ferðamannastraumi og vekur það furðu að fráfarandi ríkisstjórn hafi ekki hafið uppbyggingu í vegakerfinu þegar í upphafi síðasta kjörtímabils, þegar fjárhagslegt svigrúm hafði myndast til þess.
    Það eru vonbrigði fyrir landsmenn að sú þverpólitíska niðurstaða um endurbætur á sam­gönguáætlun sem lögð var fram og samþykkt af öllum flokkum í lok síðasta þings skuli ekki fjármögnuð nema að þriðjungi í fjárlagafrumvarpinu. Það er þó mat 6. minni hluta að sam­komulagið sem náðst hefur um að takast á við allra brýnustu verkefnin í samgöngumálum sé þess eðlis að unnt sé að veita því brautargengi. Má þar m.a. nefna Dettifossveg, Dýra­fjarðargöng, Berufjarðarbotn ásamt auknum fjármunum í viðhald sem er afar brýnt.

Ljósleiðari – háhraðatengingar.
    Yfir stendur átak í ljósleiðaravæðingu – Ísland ljóstengt – sem miðar að því að unnt verði að tengja 99,9% lögheimila með heilsársbúsetu og atvinnuhúsnæðis með heilsársstarfsemi 100Mb/s þráðbundinni nettengingu fyrir lok ársins 2020. Ljósleiðaratenging er gríðarlega mikilvæg í samtímanum, hvort sem er vegna einstaklingsþarfa eða vegna atvinnustarfsemi og það er viðhorf 6. minni hluta að þetta verkefni hefði þurft að ganga hraðar fyrir sig og fjárveitingar að vera samkvæmt því. Eins og gefur að skilja er málið sérstaklega mikilvægt fyrir landsbyggðina.

Þróunarsamvinna.
    Íslenska ríkið á að taka þátt í þróunarsamvinnu með myndarlegum hætti og stórauka framlög til málaflokksins til samræmis við markmið Sameinuðu þjóðanna þannig að þau verði 0,7% af VLF. Íslensk stjórnvöld styðja þetta markmið í orði en sýna það ekki í verki því framlög Íslands eru nú einungis 0,25% af VLF og hækkun sem stefnt er að til ársins 2021 er óveruleg. Stjórnvöld þurfa að hverfa frá stefnu metnaðarleysis í þessum málaflokki.

Flóttamenn og hælisleitendur.
    Í janúar 2017 er von á 47 flóttamönnum frá Sýrlandi sem eru hluti af þeim 103 flótta­mönnum sem stjórnvöld ákváðu í september 2015 að taka á móti að beiðni Flóttamannastofn­unar Sameinuðu þjóðanna. Verulegum áhyggjum veldur að inn í frumvarpið vantar fjármagn til móttöku þeirra. Umræddir einstaklingar munu eignast nýtt heimili hér á landi og ber nauð­syn til að þeim fylgi tilteknir fjármunir til þeirra sveitarfélaga sem fá þá til sín.
    Fjölskyldurnar sem koma eru níu talsins og flytja í þrjú sveitarfélög sem öll gera ráð fyrir þessu framlagi. Ráða verður fram úr þessu máli hið fyrsta og gera sveitarfélögum kleift að taka á móti sýrlensku fjölskyldunum með sama hætti og gert hefur verið hingað til.
    Ísland hefur ágæta burði til að taka á móti fleira flóttafólki en nú er gert. Langvarandi styrjöld í Sýrlandi og stríðsátök víðar í heiminum hafa valdið því að aldrei hafa fleiri verið á flótta í veröldinni en nú. Þessu verðum við að bregðast við, axla ábyrgð okkar í alþjóðasamfélaginu og bjóða hingað umtalsvert fleirum en nú er gert.
    Bæta þarf úr málefnum hælisleitenda hérlendis og jafna aðstæður þeirra og svokallaðra kvótaflóttamanna þegar kemur að aðlögun að samfélaginu eftir að hæli hefur verið veitt. Mikilvægt er að tryggja fullnægjandi framkvæmd nýrra útlendingalaga sem taka gildi nú um áramótin með nægu fjármagni og mannafla.

Heilbrigðisþjónusta og greiðsluþátttaka sjúklinga.
    Starfrækja á heilbrigðiskerfið á félagslegum grunni. Mikilvægt er að hér byggist ekki upp tvöfalt kerfi þar sem hinir efnameiri geta keypt sér læknisþjónustu sem öðrum stendur ekki til boða.
    Forgangsmál í félagslega reknu heilbrigðiskerfi er að kostnaði sjúklinga sé haldið í slíku lágmarki að hann fæli engan frá því að sækja sér þjónustu. Á árinu 2015 sóttu 8000 Íslendingar sér ekki heilbrigðisþjónustu vegna þess að þeir höfðu ekki ráð á því. Hér þurfum við að breyta um stefnu nú þegar. Draga þarf markvisst úr greiðsluþátttöku sjúklinga í þessu skyni, og byrja á börnum, öryrkjum og öldruðum.
    Mikið ósætti hefur ríkt í samfélaginu vegna hrakandi stöðu heilbrigðisstofnana og heil­brigðisþjónustu á Íslandi og tekur Vinstri hreyfingin – grænt framboð undir kröfu þeirra 86 þúsund einstaklinga sem hafa með undirskrift sinni krafist þess að framlög til heilbrigðismála verði 11% af vergri landsframleiðslu á ári hverju og verði þannig sambærileg við það sem gerist annars staðar á Norðurlöndunum.

Landspítalinn.
    Það er ljóst að staða Landspítalans er grafalvarleg vegna fjárskorts og hefur svo verið í nokkurn tíma. Þjónustuþörf eykst árlega vegna fjölgunar sjúklinga og breytinga í aldurssam­setningu þjóðarinnar. Í aðdraganda nýliðinna kosninga töluðu stjórnmálamenn einum rómi um að endurreisn heilbrigðiskerfisins væri efsta forgangsmál, en enn lítur út fyrir að lands­menn sjái fram á þjóðarsjúkrahús sem heldur sjó í stað þess að bæta í, þrátt fyrir samkomulag sem náðist á milli flokkanna um aukið fjárframlag. Fjármuni vantar enn til þess að uppbygg­ing geti hafist.

Heilbrigðisstofnanir.
    Alvarlega stöðu í heilbrigðiskerfinu má sjá víðar en hjá Landspítalanum. Heilbrigðisstofn­unum á landinu öllu hefur verið sniðinn þröngur stakkur um árabil og telja má augljóst að aðhaldskröfur síðustu ára á stofnanirnar hafi verið of miklar í ljósi þröngrar stöðu þeirra nú. Ekki er nóg að gert í tillögum frumvarpsins til að þessum mikilvægu hornsteinum velferðar í héraði sé tryggður eðlilegur rekstrargrundvöllur, þótt ánægjulegt sé að samstaða hafi náðst um einhver skref í þá átt.


Háskólar.
    Bregðast verður við fjársvelti háskólanna og alvarlegri stöðu þeirra. Öflug háskólamennt­un er mikilvægasta leiðin til að tryggja hagsæld til framtíðar, atvinnuuppbyggingu sem byggist á frumkvæði og nýsköpun einstaklinga. Taka þarf markviss skref í átt að því að framlög á hvern háskólanema nái sem fyrst meðaltali OECD og í kjölfarið verði þau hækkuð þannig að Ísland standi jafnfætis öðrum Norðurlöndum í takt við samþykkta stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rektorar allra háskólanna á Íslandi hafa sameinast um yfirlýsingu um undir­fjármögnun háskólanna og áhyggjur sínar af stöðunni og tekur Vinstri hreyfingin – grænt framboð undir þær.

Framhaldsskólar.
    Mikilvægt er að framhaldsskólar verði aftur opnir öllum, ekki aðeins þeim sem eru yngri en 25 ára. Auka þarf framlög með hverjum nemenda án þess að horfið sé til aðgerða sem eru fjöldatakmarkanir í reynd. Tryggja þarf faglegt sjálfstæði framhaldsskólanna og gera minni skólum úti á landi kleift að hafa fjölbreytt námsframboð.

Alþingi, 22. desember 2016.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.