Ferill 118. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.

Þingskjal 177  —  118. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um fordæmingu aðgerða Bandaríkjaforseta gegn múslimum.


Flm.: Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Guðjón S. Brjánsson, Andrés Ingi Jónsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Smári McCarthy, Viktor Orri Valgarðsson, Ásta Guðrún Helgadóttir.


    Alþingi fordæmir harðlega tilskipun forseta Bandaríkjanna sem beinist gegn múslimum, með því að neita ríkisborgurum sjö ríkja og fólki með uppruna í þeim ríkjum að ferðast til Bandaríkjanna.

Greinargerð.

    Hinn 27. janúar sl. gaf forseti Bandaríkjanna út tilskipun þess efnis að fólki frá sjö ríkjum, Sýrlandi, Írak, Íran, Jemen, Lýbíu, Sómalíu og Súdan, væri óheimilt að koma inn í landið. Má þá einu gilda hvort um ræðir flóttamenn, einstaklinga með tilskyldar vegabréfsáritanir eða handhafa græna kortsins. Tilskipunin er fordæmalaus og lýsir mannfyrirlitningu, byggist á fordómum og grefur undan mannréttindum og þeim lýðræðislegu gildum sem almennt eru viðurkennd í vestrænum lýðræðisríkjum. Þá er hún fremur fallin til að kynda undir ófriði en tryggja öryggi. Zeid bin Ra'ad Zeid al-Hussein, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur sagt aðgerðina ólöglega og setta fram af illum hug. Með henni fari að auki fjármunir í vaskinn sem ella gætu nýst í baráttu gegn hryðjuverkum.