Ferill 132. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 191  —  132. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver yrði árlegur aukakostnaður ríkissjóðs við almannatryggingakerfið ef hætt yrði að skerða bætur vegna tekna lífeyrisþega, maka eða sambúðarmaka? Svar óskast sundurliðað eftir tekjum lífeyrisþega annars vegar og tekjum maka eða sambúðarmaka hins vegar.
     2.      Hver yrði árlegur aukakostnaður ríkissjóðs við almannatryggingakerfið ef örorkulífeyrisþegar hefðu eitt frítekjumark, 1.315.200 kr. á ári, óháð því hvaðan tekjur kæmu?
     3.      Hver yrði árlegur aukakostnaður ríkissjóðs við almannatryggingakerfið af því að fella sérstaka uppbót á lífeyri vegna framfærslu skv. 2. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð inn í tekjutryggingu skv. 22. gr. laga um almannatryggingar þannig að hætt yrði að skerða uppbótina „krónu á móti krónu“ vegna annarra tekna lífeyrisþega?


Skriflegt svar óskast.