Ferill 141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 200  —  141. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um úthaldsdaga Landhelgisgæslunnar.

Frá Gunnari I. Guðmundssyni.


     1.      Hversu margir hafa árlegir úthaldsdagar Landhelgisgæslunnar verið frá árinu 2013, sundurliðað eftir árum og skipum, og hversu marga af þeim hefur Landhelgisgæslan verið við eftirlitsstörf?
     2.      Hversu oft hafa varðskip Landhelgisgæslunnar tekið eldsneyti, þ.m.t. á Íslandi, sundurliðað eftir dagsetningu, löndum og magni?
     3.      Hversu marga daga hefur Landhelgisgæslan ekki sinnt eftirlitsstörfum vegna eldsneytistöku annars staðar en á Íslandi?


Skriflegt svar óskast.