Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 237  —  170. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum (OPCAT).

Frá Birgittu Jónsdóttur.


    Hvenær er áætlað að Ísland fullgildi valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu sem samþykkt var af hálfu Alþingis 19. desember 2015?