Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 259  —  188. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um rekstur innanlandsflugvalla.

Frá Ara Trausta Guðmundssyni.


     1.      Til hvaða ráðstafana hyggst ráðherra grípa til að tryggja rekstur innanlandsflugvalla, viðhald þeirra og uppbyggingu í ljósi þess að fjárveitingar til innanlandsflugvalla voru skornar niður í fjárlögum fyrir árið 2017?
     2.      Hvenær má búast við ráðstöfunum ráðherra til að tryggja starfsemi innanlandsflugvalla og verður það áður en kemur til frekari uppsagna starfsfólks og skertrar þjónustu á flugvöllum sökum samdráttar í fjárveitingum?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerður verði lengri þjónustusamningur við Isavia en nú er, t.d. til fimm ára í senn, þannig að unnt verði að gera haldbærar áætlanir um rekstur, viðhald og framkvæmdir vegna innanlandsflugs?


Skriflegt svar óskast.