Ferill 326. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 445  —  326. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um aðild Lánasjóðs íslenskra námsmanna að dómsmálum.

Frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur.


    Að hversu mörgum dómsmálum hefur Lánasjóður íslenskra námsmanna átt aðild frá árinu 2000? Svar óskast sundurliðað eftir árum, því hvort sjóðurinn var stefnandi eða hinn stefndi, niðurstöðu úrskurðar, þ.e. hvort sjóðurinn vann mál eða tapaði, og því hversu oft dómsátt náðist.


Skriflegt svar óskast.