Ferill 328. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 447  —  328. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um leyfi til olíuleitar.

Frá Halldóru Mogensen.


     1.      Hversu mörg leyfi til olíuleitar eru í gildi hér á landi, hverjir eru handhafar leyfanna og hver er gildistími þeirra?
     2.      Fylgja réttindi til borunar öllum leyfum eða einhverjum þeirra?
     3.      Er ráðgert að veita fleiri leyfi?
     4.      Hversu mikið mundi kosta að afturkalla leyfin?


Skriflegt svar óskast.