Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 471  —  346. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um þrjá tengivegi.

Frá Bjarna Jónssyni.


     1.      Hve miklum fjármunum verður varið á þessu ári til viðhalds og uppbyggingar á:
                  a.      Hegranesvegi nr. 764,
                  b.      Reykjastrandarvegi nr. 748,
                  c.      Vatnsnesvegi nr. 711?
     2.      Telur ráðherra að það fé nægi til fullnægjandi endurbóta á framangreindum vegum eða hyggst hann beita sér fyrir því að viðbótarfjármagn verði veitt til uppbyggingar þeirra og ef svo er, hve miklu og hvenær?
     3.      Liggur fyrir tímasett áætlun um hvenær bundið slitlag verður lagt á vegina og þeim framkvæmdum lokið?


Skriflegt svar óskast.