Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 476  —  350. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um viðbrögð við nýrri tæknibyltingu.


Flm.: Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Guðjón S. Brjánsson.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að stofna starfshóp skipaðan fulltrúum þingflokka, háskólasamfélagsins, atvinnulífsins og stéttarfélaga. Starfshópurinn meti heildræn áhrif komandi samfélagsbreytinga vegna tæknibyltingar, sjálfvæðingar, gervigreindar og fyrirsjáanlegrar fækkunar starfa og breytinga á þeim á íslenskt samfélag. Starfshópurinn vinni skýrslu og leggi þar drög að viðbragðsáætlun vegna þessa. Forsætisráðherra skili Alþingi skýrslu um niðurstöður starfshópsins eigi síðar en við upphaf 147. löggjafarþings 2017–2018.

Greinargerð.

    Samfélag okkar stendur frammi fyrir gríðarlegri tæknibyltingu sem mun gjörbreyta þjóðfélaginu. Áætlað er að innan 20 ára muni t.d. um helmingur allra starfsgreina í Bandaríkjunum sjálfvirknivæðast. Gera má ráð fyrir að þróunin verði með svipuðum hætti á Íslandi. Þessi þróun er ný iðnbylting sem mun hafa ófyrirséðar afleiðingar á samfélagið.
    Með iðnbyltingunni á 19. öld urðu gríðarlegar breytingar. Fram á sjónarsviðið komu vélar sem leystu vöðvaaflið af hólmi. Mörg störf hurfu og ný urðu til, mestmegnis í borgum sem ýtti undir gríðarlegan vöxt þeirra. Í Bandaríkjunum voru t.d. árið 1900 um 42% allra starfa í sveitum en nú eru þau einungis 2%. Samfélag þess tíma brást við þessum breytingum með margvíslegum hætti. Þær leiddu til almennari menntunar, fyrst á grunnskólastigi en síðar á efri stigum menntakerfisins.
    Nýja iðnbyltingin er að því leyti frábrugðin að nú mun tæknin ekki eingöngu koma í stað vöðvaafls heldur líka hugarafls að einhverju marki. Gervigreindin gefur vélum til að mynda áður óþekkta hæfni. Skýrt dæmi eru sjálfkeyrandi bílar. Nýja iðnbyltingin verður öðruvísi vegna þess að vélar eru farnar að hlusta, tala og skilja. Vélarnar þurfa enga stjórn frá mönnum til að leysa flókin og margbreytileg verkefni og störf sem bæði háskólamenntaðir og ómenntaðir sinna í dag. Þótt tæknin hafi verið í stöðugri þróun er ýmislegt sem bendir til þess að í hinum stafræna, vel tengda heimi verði þessar breytingar á ógnarhraða og umfangsmeiri en áður þekkist. Jafnframt má gera ráð fyrir að innan fárra áratuga verði þátttaka mannsins í samfélaginu með allt öðrum hætti en við höfum þekkt hingað til.
    Mikil tækifæri felast í sjálfvirknivæðingu og gervigreind. Framleiðni getur aukist gríðarlega en það er nauðsynlegt til að takast á við áskoranir tengdar breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og hærri lífaldri. Þessi nýi veruleiki gefur okkur líka tækifæri til meiri samskipta við vini og fjölskyldu og auknar frístundir og í honum felast líka möguleikar til vistvænnar framleiðslu og viðbragða við loftlagsvánni sem við stöndum frammi fyrir.
    Tækifærunum fylgja líka ógnir ef ekki er rétt haldið á spilunum. Um leið og mörg hefðbundin störf tapast verða önnur ný til. Því þarf að skoða sérstaklega þátt menntunar í undirbúningi þessarar framtíðar. Freista verður þess að spá um hvernig störf eru líkleg til að úreldast, hvers konar störf verða áfram unnin af mönnum og hvaða tegund nýrra starfa skapast, svo og hvernig við gerum menntakerfinu kleift að fást við þetta mikilvæga viðfangsefni. Ef við viljum að á Íslandi sé áfram mikil atvinnuþátttaka felst lausnin tæplega í því að viðhalda störfum 20. aldarinnar heldur miklu fremur að fjárfesta í menntastefnu sem styður við þennan nýja veruleika. Þar þarf að huga sérstaklega að undirbúningi fyrir störf sem eru líkleg til að verða áfram unnin af mönnum. Þar má nefna störf sem krefjast góðrar samskiptahæfni, svo sem í þjónustu, umönnun og kennslu. Þá þarf að leggja áherslu á að auka tölvufærni og tækninám, örva skapandi hugsun og efla hefðbundið listnám. Þá þarf að þróa virkari símenntunarúrræði til að mæta þeim sem þegar hafa menntað sig en þurfa að horfast í augu við breytingar á stöðu sinni vegna nýrra atvinnuhátta.
    Nýja iðnbyltingin getur leitt til þess að valdið færist frá vinnuaflinu til fjármagnsins, að ágóðinn af tækniþróuninni verði eftir hjá fyrirtækjunum og að kjör og aðstæður almennings batni ekki í sama mæli. Aukin velmegun og völd fyrirtækja mega ekki draga úr möguleikum stjórnvalda til að tryggja bæði efnahagslegan og félagslegan stöðugleika. Þó að mjög langt sé í það að vélar leysi öll störf mannsins af hólmi þarf að skoða vel leiðir til þess að tryggja lífsafkomu einstaklinga ef vinnuframlag þeirra minnkar til muna. Fara þarf vel yfir allar hugmyndir, t.d. breytingar á núverandi velferðar- og skattkerfi, styttingu vinnuvikunnar, borgaralaun og margar fleiri.
    Í hinum nýja veruleika er öruggt að starfsvettvangur margra fyrirtækja verður með allt öðru sniði en hefur verið algengast. Þar verða störf ekki endilega tengd stað eða stund og víst að viðskipti milli landa munu aukast samhliða. Því er mikilvægt að nefndin skoði sérstaklega hvers konar peninga- og gjaldmiðlastefna mun nýtast Íslandi best til þess að takast á við nýjan veruleika.