Ferill 382. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 511  —  382. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsskóla.

Frá Nichole Leigh Mosty.


     1.      Hversu margir nemendur af erlendum uppruna:
                  a.      innrituðust í framhaldsskóla,
                  b.      útskrifuðust úr framhaldsskóla,
        á árunum 2010–2016 sundurliðað eftir kynjum og skólum?
     2.      Eftir hve langan tíma að meðaltali hætta námi þeir nemendur af erlendum uppruna sem útskrifast ekki úr framhaldsskóla?


Skriflegt svar óskast.