Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 599  —  448. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um eignir og tekjur landsmanna árið 2016.

Frá Loga Einarssyni.


     1.      Hvert var eigið fé þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert var hlutfall eigin fjár þeirra af eigin fé allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
     2.      Hverjar voru heildareignir þeirra a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna sem mest áttu árið 2016 og hvert var hlutfall heildareigna þeirra af heildareignum allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
     3.      Hverjar voru tekjur tekjuhæstu a) 5%, b) 1%, c) 0,1% landsmanna árið 2016, með og án fjármagnstekna, og hvert var hlutfall tekna þeirra af tekjum allra landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?
     4.      Hvað áttu tekjuhæstu a) 10%, b) 5%, c) 1%, d) 0,1% landsmanna árið 2016 stóran hluta af annars vegar eigin fé landsmanna og hins vegar heildareignum landsmanna árið 2016? Hverjar eru sambærilegar tölur fyrir árin 1997–2015?


Skriflegt svar óskast.