Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 655  —  472. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um kaup á nýjum krabbameinslyfjum.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Hafa verið efnd fyrirheit ríkisstjórnarinnar frá því í febrúar á þessu ári um að fé yrði veitt til kaupa á nýjum krabbameinslyfjum?
     2.      Hve miklu fé verður varið til kaupa á nýjum krabbameinslyfjum á þessu ári?
     3.      Hve margir sjúklingar munu eiga þess kost að fá ný krabbameinslyf og hvenær verða þau tiltæk?