Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 659 — 476. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um ábúð á jörðum í eigu ríkisins.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hve margar jarðir í eigu ríkisins hafa losnað árlega úr ábúð sl. 10 ár, hve margar þeirra hafa verið auglýstar lausar til ábúðar, hve margar eru ekki lengur í ábúð og hver er ástæða þess?
2. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um ábúð ríkisjarða og sölu bújarða í eigu ríkisins?
3. Hver er eigendastefna ríkisins gagnvart bújörðum?
4. Á hve stórum hluta ríkisjarða hefur farið fram mat á því hvort það felist samfélagslegur ávinningur í eignarhaldi ríkisins eða almannahagsmunir, svo sem vegna landgræðslu, vegagerðar eða annars sem ríkið metur til almannahagsmuna?
5. Hvaða skilyrði þarf ábúð á ríkisjörð að uppfylla til að talið verði að samfélagslegir hagsmunir byggðar á viðkomandi svæði skaðist ekki verði látið af ábúð? Hversu þungt vega þessi sjónarmið við mat á nauðsyn ábúðar á ríkisjörðum?
6. Hvernig hyggst ráðherra framfylgja og útfæra bókun um byggðamál sem fram kemur í rammasamningi um starfsskilyrði landbúnaðarins, gagnvart bújörðum í eigu ríkisins, þess efnis að ráðast skuli í starf sem miðar að því að treysta innviði og búsetu í sveitum?
7. Tryggir ríkissjóður fjallskil á þeim jörðum sínum þar sem þau eiga við?
8. Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um flokkun og vernd ræktunarlands, hver er staðan á skráningu ræktarlands og liggja fyrir verndar- og varðveisluráðstafanir þar sem þær eru taldar eiga við?
9. Telur ráðherra að setja þurfi skýrar reglur sem miða að því að koma í veg fyrir kaup erlendra aðila, sem ekki hafa hér lögheimili og fasta búsetu, á landi, m.a. jörðum í eigu ríkisins? Ef svo er, hvert verður megininntak þeirra reglna?
10. Hvernig mun ráðherra, í tilvikum bújarða ríkisins, tryggja markmið rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins um að „auðvelda nýliðun, þannig að nauðsynleg kynslóðaskipti geti orðið í hópi framleiðenda og tryggja að stuðningur ríkisins nýtist sem best starfandi bændum“?
11. Hvernig hyggst ráðherra tryggja megináherslur samningsins um viðhald ræktunar og endurræktun grass, grænfóðurs og korns á bújörðum ríkisins svo að ræktað land sem ekki er setið fari ekki fljótlega í órækt?
Skriflegt svar óskast.