Ferill 477. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 660 — 477. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um eignasafn lífeyrissjóðanna.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu stór hluti eignasafns lífeyrissjóðanna er bundinn í starfsemi sem felst í vinnslu og sölu jarðefnaeldsneytis? Svarið óskast sundurliðað fyrir hvern lífeyrissjóð um sig og eftir erlendum og innlendum fjárfestingum.
2. Eiga einhverjir lífeyrissjóðanna eignir í fyrirtækjum sem framleiða vopn eða íhluti í vopn? Ef svo er, hverjar eru þær eignir, hvaða sjóðir eiga þær og hvort eru þær erlendar eða innlendar?
Skriflegt svar óskast.