Ferill 528. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 764 — 528. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um einkavæðingu Iðnskólans í Hafnarfirði.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hvað greiddi Tækniskólinn íslenska ríkinu fyrir Iðnskólann í Hafnarfirði?
2. Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu inn í Tækniskólann frá íslenska ríkinu við sameiningu hans við Iðnskólann í Hafnarfirði? Hverjar voru þessar eignir?
3. Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Tækniskólanum að lokinni sameiningu hans og Iðnskólans í Hafnarfirði?
4. Rann Iðnskólinn í Hafnarfirði ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Tækniskólann án nokkurs endurgjalds?
Skriflegt svar óskast.