Ferill 529. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 765 — 529. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um einkavæðingu Iðnskólans í Reykjavík.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hvað greiddi Fjöltækniskólinn, eða eigendur hans, íslenska ríkinu fyrir Iðnskólann í Reykjavík?
2. Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu inn í Fjöltækniskólann frá íslenska ríkinu við sameiningu hans við Iðnskólann í Reykjavík? Hverjar voru þessar eignir?
3. Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Fjöltækniskólanum að lokinni sameiningu hans og Iðnskólans í Reykjavík?
4. Rann Iðnskólinn í Reykjavík ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Tækniskólann/Fjöltækniskólann án nokkurs endurgjalds?
Skriflegt svar óskast.