Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 835 — 555. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur.
1. Hvar eru áætlanir á vegi staddar um að setja á fót móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. 27. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016?
2. Hversu marga þjónustusamninga hefur ráðuneytið gert vegna móttökumiðstöðva fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og við hverja?
Skriflegt svar óskast.