Ferill 580. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 897  —  580. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um Fjarmenntaskólann og námsbrautarlýsingar.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hvert telur ráðherra vera framtíðarhlutverk Fjarmenntaskólans í samstarfi framhaldsskólanna á landsbyggðinni?
     2.      Hvað eru margar námsbrautarlýsingar á framhaldsskólastigi sem unnið er eftir og ekki hafa enn hlotið staðfestingu Menntamálastofnunar?


Skriflegt svar óskast.