Ferill 505. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 902  —  505. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, nr. 37/2016, með síðari breytingum (úttektarheimildir).

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.


    Nefndin afgreiddi málið 18. maí sl. Í kjölfarið barst nefndinni erindi frá Seðlabanka Íslands þar sem fram kom að af hálfu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefðu verið gerðar athugasemdir við að 1. gr. frumvarpsins tæki ekki til lokagreiðslna jafngreiðslubréfa. Nefndin fékk Guðmund Sigbergsson og Jens Fjalar Skaptason frá Seðlabanka Íslands á sinn fund vegna málsins.
    Með tilliti til athugasemda Seðlabanka Íslands leggur nefndin til að úttektarheimild skv. 1. gr. frumvarpsins nái til samningsbundinna afborgana á lokagjalddaga lánaskuldbindinga, þó ekki lánaskuldbindinga sem aðeins fela í sér eingreiðslu á gjalddaga.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Í stað orðanna „fyrir lokagjalddaga“ í 1. gr. komi: annarra en eingreiðslulánaskuldbindinga.

Alþingi, 23. maí 2017.

Óli Björn Kárason,
form.
Vilhjálmur Bjarnason,
frsm.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Brynjar Níelsson. Jón Steindór Valdimarsson. Katrín Jakobsdóttir.
Lilja Alfreðsdóttir. Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Smári McCarthy.