Ferill 585. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 912  —  585. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um nýtingu og ráðstöfun ríkisjarða.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hafa reglur um ráðstöfun ríkisjarða frá 13. júlí 2011 verið felldar úr gildi og ef svo er, með hvaða hætti?
     2.      Verða þær ríkisjarðir þar sem ábúð hefur verið sagt upp, frá og með vorinu 2017, auglýstar lausar til ábúðar eða til sölu? Ef svo er ekki, af hverju?
     3.      Á hversu mörgum ríkisjörðum hefur ábúð verið sagt upp á árunum 2010–2017, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hversu margar ríkisjarða þar sem ábúð hefur verið sagt upp á árunum 2010–2017 hafa verið auglýstar lausar til ábúðar? Hversu mörgum hefur verið ráðstafað til ábúðar eða á annan hátt?
     5.      Hefur verið metið árlegt verðmætatap og/eða samfélagslegt tap sem hlýst af því þegar jörð sem nýta mætti til búsetu og framleiðslu er ekki setin?
     6.      Er unnið að stefnumótun varðandi nýtingu og ráðstöfun þeirra jarða sem ríkið á eða hefur til ráðstöfunar? Ef svo er, hvernig var ákvörðun um slíkt tekin og hvað er lagt til grundvallar?


Skriflegt svar óskast.