Ferill 263. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 917  —  263. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon og Davíð Loga Sigurðsson frá utanríkisráðuneytinu, Halldór Oddsson frá Alþýðusambandi Íslands, Ólaf Stephensen frá Félagi atvinnurekenda, Halldór Árnason frá Samtökum atvinnulífsins og Hörð H. Helgason frá Íslandsdeild Amnesty International. Nefndinni bárust umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Félagi atvinnurekenda, Samtökum atvinnulífsins, Íslandsdeild Amnesty International og Árna Davíðssyni.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Filippseyja sem undirritaður var í Bern í Sviss 28. apríl 2016.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að fríverslunarsamningurinn við Filippseyjar kveður á um gagnkvæma niðurfellingu og lækkun tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og unnar og óunnar landbúnaðarvörur. Þannig munu tollar á flestallar sjávarafurðir og iðnaðarvörur, sem fluttar eru út frá Íslandi til Filippseyja, falla niður og sama á við um helstu landbúnaðarvörur sem framleiddar eru hér á landi til útflutnings.
    Fríverslunarsamningurinn er af svokallaðri þriðju kynslóð fríverslunarsamninga og inniheldur ákvæði um vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, fjárfestingar, verndun hugverkaréttar, opinber innkaup, samkeppnismál og viðskipti og sjálfbæra þróun, auk hefðbundinna ákvæða um sameiginlega nefnd samningsaðila og lausn deilumála.
    Þá segir í greinargerð að útflutningur frá Íslandi til Filippseyja hafi verið lítill, eða sem nemur 50–100 millj. kr. á ári. Hefur þar fyrst og fremst verið um að ræða útflutning á tækjabúnaði, einkum vogum og búnaði í tengslum við jarðboranir, auk lítils háttar útflutnings á heilfrystum makríl. Einnig hafa íslenskir aðilar í talsverðum mæli selt þjónustu sína og þekkingu vegna rannsókna og nýtingar á jarðhita í Filippseyjum. Innflutningur frá Filippseyjum hefur á undanförnum árum numið um 300 millj. kr. á ári. Með gagnkvæmri niðurfellingu og lækkun tolla skapast forsendur fyrir auknum viðskiptum milli landanna.
    Við umfjöllun nefndarinnar um málið og í umsögnum og máli gesta komu fram þungar áhyggjur af stöðu mannréttindamála á Filippseyjum í kjölfar þess að Rodrigo Roa Duterte tók við embætti forseta landsins í júní 2016. Við valdatöku hans hófu stjórnvöld á Flippseyjum ofbeldisfulla herferð gegn þeim sem grunaðir voru um brot gegn þarlendri eiturlyfjalöggjöf. Hefur þessi herferð leitt til dauða þúsunda borgara en meiri hluti þeirra hefur verið skotinn til bana á götum úti af óþekktum byssumönnum. Amnesty International telur að hópur myrtra telji nú þegar fleiri en 8.000 einstaklinga.
    Við umfjöllun nefndarinnar komu fram ólík sjónarmið um réttmæti þess að gera fríverslunarsamning við ríki þar sem ástand mannréttinda er jafnbágborið og á Filippseyjum. Með einföldun má segja að annars vegar hafi það sjónarmið komið fram að neitun um gerð slíkra samninga setji þrýsting á ríki sem brjóta mannréttindi sem getur leitt til bóta ef viðkomandi ríki leggja áherslu á aðgang að erlendum mörkuðum og hindranalaus alþjóðaviðskipti. Hins vegar var því sjónarmiði haldið á lofti að fríverslunarsamningar bæti hag almennings í samningsríkjum og vinni gegn einangrunarstefnu auk þess sem slíkum samningum fylgi aukin samskipti og tækifæri til að koma á framfæri afstöðu Íslands varðandi lýðræði og mannréttindi.
    Meiri hlutinn bendir á að í formálsorðum samningsins er áréttuð skuldbinding samningsríkjanna til að styðja við lýðræði, réttarreglur, mannréttindi og mannfrelsi í samræmi við skyldur sínar að þjóðarétti, m.a. í sáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
    Þá skal bent á að sérstakur kafli í samningnum fjallar um viðskipti og sjálfbæra þróun eins og tíðkast hefur í nýlegum fríverslunarsamningum EFTA. Samningsaðilar viðurkenna að efnahagsleg þróun, félagsleg þróun og umhverfisvernd séu sjálfstæðir þættir sem styðja með gagnkvæmum hætti við sjálfbæra þróun. Samningsaðilar árétta einnig skyldur sínar til að virða, efla og framkvæma þær meginreglur um grundvallarréttindi sem er að finna í yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um grundvallarviðmið og réttindi við vinnu og í áréttingu hennar sem Alþjóðavinnumálaþingið samþykkti árið 1998.
    Loks bendir meiri hlutinn á að Íslandsdeild Amnesty International er ekki mótfallin fríverslunarsamningi EFTA og Filippseyja og leggst ekki gegn fyrirliggjandi þingsályktunartillögu um fullgildingu hans. Hins vegar skorar Íslandsdeild Amnesty International í umsögn sinni á íslensk stjórnvöld að nýta þau tækifæri sem gefast til að vekja athygli á versnandi stöðu mannréttindamála á Filippseyjum og hvetja þarlend stjórnvöld — þar á meðal í tengslum við umræddan fríverslunarsamning og framkvæmd hans — til að gera úrbætur í þeim málum. Meiri hlutinn tekur undir með Íslandsdeild Amnesty International og leggur ríka áherslu á það að íslensk stjórnvöld haldi á lofti stöðu mannréttinda á Filippseyjum og hvetji til tafarlausra úrbóta, jafnt í samskiptum við stjórnvöld á Filippseyjum og á alþjóðlegum vettvangi þar sem fjallað er um mannréttindamál.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 23. maí 2017.

Jóna Sólveig Elínardóttir,
form.
Vilhjálmur Bjarnason,
frsm.
Birgir Ármannsson.
Bryndís Haraldsdóttir. Teitur Björn Einarsson.