Ferill 553. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 949  —  553. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016, og lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015 (framkvæmd og dagsetningar).

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Annar minni hluti hefur greitt fyrir framgangi þessa máls í ljósi þess að það felur einkum í sér lagfæringar sem ívilna þeim sem hyggjast nýta sér það úrræði sem samþykkt var á síðasta þingi um stuðning við þá sem hyggjast fjárfesta í fyrstu fasteign. 2. minni hluti styður þó ekki málið enda felur það í sér breytingar á lögum sem þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Pírata greiddu atkvæði gegn á síðasta þingi. Ástæða þess er að þetta stuðningskerfi er í raun mismununartæki þar sem sameiginlegir sjóðir skattgreiðenda eru nýttir til að mismuna ólíkum tekjuhópum þannig að þeir tekjuhærri fái hærri skattafslátt en hinir tekjulægri og þar með hærra hlutfall af opinberu fé í húsnæðisstuðning.
    Þetta er algjör stefnubreyting frá því húsnæðisstuðningskerfi sem um langt skeið ríkti sæmileg sátt um, þ.e. vaxtabætur sem tóku mið af tekju- og eignastöðu. Þær hafa nú verið skornar niður um 70% á fimm árum en á móti eru lagðar til aðgerðir sem beinlínis auka mismunun og ójöfnuð í samfélaginu. Staðreyndin er sú að miðað við þá útreikninga sem lagðir voru fram í vinnu efnahags- og viðskiptanefndar á síðasta þingi er afar ólíklegt að þetta úrræði gagnist stórum hluta ungs fólks ef miðað er við þróun fasteignaverðs og miðgildi ráðstöfunartekna tveggja yngstu aldurshópanna (25–34 ára og 35–44 ára). Fyrst og fremst mun þetta verða ráðstöfun opinbers fjár til tekjuhærri hópa. Það hlýtur að teljast afar óskynsamleg ráðstöfun á skattfé.
    Þessi afstaða 2. minni hluta hefur ekki breyst. Þær fyrirætlanir sem svo birtast í fjármálaáætlun núverandi meiri hluta á Alþingi um að draga úr húsnæðisstuðningi næstu fimm árin, þrátt fyrir ástandið á húsnæðismarkaði, benda til þess að ætlan núverandi ríkisstjórnar sé að einskorða húsnæðisstuðning hins opinbera við tekjuhærri einstaklinga í formi skattaafsláttar en draga úr stuðningi við uppbyggingu leiguhúsnæðis sem nýtist fremur hinum tekjulægri.

Alþingi, 29. maí 2017.

Katrín Jakobsdóttir,
frsm.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Smári McCarthy.