Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 1020  —  510. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Einari Brynjólfssyni um samninga ráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélög.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða samningar ráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélögin voru í gildi 1. apríl 2017, hvaða samningar milli þessara aðila runnu út á tímabilinu 1. janúar 2006 til og með 1. apríl 2017 og eftir hvaða samningum var enn greitt 1. apríl 2017 þótt gildistími þeirra væri liðinn? Óskað er eftir stuttri lýsingu á efni hvers samnings fyrir sig.

    Gildandi samningar ráðuneytisins við sveitarfélög eru eftirfarandi:
     a.      Húsaleigusamningur, ótímabundinn, frá 1. maí 2016 við Sveitarfélagið Skagafjörð vegna starfsemi skjalasafns.
     b.      Lóðarleigusamningur, ótímabundinn, frá 1. júlí 1985 við Bolungarvíkurkaupstað vegna reksturs ratsjárstöðva.