Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.

Þingskjal 1102  —  559. mál.
Málsnúmer.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Elsu Láru Arnardóttur um kostnað vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Vestfjarðaveg.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur kostnaður annars vegar Umhverfisstofnunar og hins vegar Skipulagsstofnunar verið vegna allrar vinnu sem tengist fyrirhuguðum framkvæmdum við Vestfjarðaveg nr. 60 um Teigsskóg frá árinu 2003?

    Umhverfisstofnun: Frá árinu 2004 hefur Umhverfisstofnun ráðstafað um sex vikna vinnu í umsagnir vegna þessa máls á ýmsum stigum þess. Umhverfisstofnun áætlar að kostnaður við þessa vinnu sé um 1,4 millj. kr. á verðlagi ársins 2017.
    Skipulagsstofnun: Á árabilinu 2003–2017 hafa áform Vegagerðarinnar um lagningu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit komið nokkrum sinnum til umfjöllunar Skipulagsstofnunar.
    Tiltekin vinna Skipulagsstofnunar er greidd af framkvæmdaraðila. Það á við um afgreiðslu stofnunarinnar á matsáætlun, kynningu hennar á frummatsskýrslu og vinnu að áliti um mat á umhverfisáhrifum. Önnur vinna stofnunarinnar varðandi matsskyldar framkvæmdir, svo sem erindi sem lúta að endurupptöku mála, eru ekki greidd af framkvæmdaraðila.
    Samkvæmt málaskrá Skipulagsstofnunar hafa helstu verkefni stofnunarinnar um Vestfjarðaveg um Gufudalssveit varðað:
          Matsáætlun 2003–2004.
          Kynningu matsskýrslu og úrskurður 2005–2007.
          Aðkomu að vinnu samgönguráðherra við að leita lausna 2011.
          Matsáætlun 2012–2014.
          Samráð við Vegagerðina og ráðuneyti um málsmeðferð 2014.
          Erindi Vegagerðarinnar og ákvörðun um endurupptöku 2015.
          Matsáætlun 2015.
          Kynningu frummatsskýrslu og álit um mat á umhverfisáhrifum 2016–2017.
    Eins og áður segir er einungis hluti þessara mála greiddur af Vegagerðinni og því liggja ekki fyrir tæmandi upplýsingar um kostnað Skipulagsstofnunar vegna alls framangreinds. Gróft má þó áætla að beinn kostnaður stofnunarinnar nemi um 10 millj. kr.