Ferill 517. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 727 — 517. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um samninga atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélög.
Frá Einari Brynjólfssyni.
Hvaða samningar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og undirstofnana þess við sveitarfélögin, á málefnasviði ráðherra, voru í gildi 1. apríl 2017, hvaða samningar milli þessara aðila runnu út á tímabilinu 1. janúar 2006 til og með 1. apríl 2017 og eftir hvaða samningum var enn greitt 1. apríl 2017 þótt gildistími þeirra væri liðinn? Óskað er eftir stuttri lýsingu á efni hvers samnings fyrir sig.
Skriflegt svar óskast.