Ferill 550. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 822 — 550. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um rannsóknir á vændiskaupum.
Frá Iðunni Garðarsdóttur.
1. Hvert er viðhorf ráðherra til þess að dregið hefur úr rannsóknum lögreglu á vændiskaupum undanfarin ár vegna skorts á fé og mannafla?
2. Hyggst ráðherra tryggja með auknum fjárframlögum að lögregla geti sinnt rannsóknum á vændiskaupum í samræmi við 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940?
Skriflegt svar óskast.