Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 835  —  555. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur.


     1.      Hvar eru áætlanir á vegi staddar um að setja á fót móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. 27. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016?
     2.      Hversu marga þjónustusamninga hefur ráðuneytið gert vegna móttökumiðstöðva fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og við hverja?


Skriflegt svar óskast.