Ferill 581. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 898  —  581. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um lýðháskóla.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hversu langt er vinna við gerð frumvarps til almennrar löggjafar um lýðháskóla á Íslandi komin í ráðuneytinu, sbr. þingsályktun nr. 41/145?
     2.      Telur ráðherra æskilegt að lýðháskólar eins og LungAskólinn á Seyðisfirði eða lýðháskólar sem unnið er að því að stofna á Flateyri og Laugarvatni starfi án sérstakrar lagalegrar umgjarðar?


Skriflegt svar óskast.