Fundargerð 147. þingi, 0. fundi, boðaður 2017-09-12 14:00, stóð 14:10:53 til 14:34:34 gert 12 14:46
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 12. sept.

Árið 2017, þriðjudaginn 12. september, var hundrað fertugasta og sjöunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundrað og tuttugasta aðalþing í röðinni en hundrað sextugasta og önnur samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu, anddyri Skálans, kl. 1.10 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufásprestakalli, predikaði. Séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Séra Bolli Pétur lagði út af Lúkasarguðspjalli 6:27.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n.
  2. Ari Trausti Guðmundsson, 6. þm. Suðurk.
  3. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 4. þm. Reykv. n.
  4. Ásmundur Friðriksson, 3. þm. Suðurk.
  5. Ásta Guðrún Helgadóttir, 3. þm. Reykv. s.
  6. Benedikt Jóhannesson, 10. þm. Norðaust.
  7. Birgir Ármannsson, 8. þm. Reykv. n.
  8. Birgitta Jónsdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  9. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  10. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Suðvest.
  11. Björn Leví Gunnarsson, 7. þm. Reykv. n.
  12. Björt Ólafsdóttir, 9. þm. Reykv. n.
  13. Bryndís Haraldsdóttir, 2. þm. Suðvest.
  14. Brynjar Níelsson, 4. þm. Reykv. s.
  15. Einar Brynjólfsson, 7. þm. Norðaust.
  16. Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvest.
  17. Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þm. Norðvest.
  18. Eygló Harðardóttir, 9. þm. Suðvest.
  19. Guðjón S. Brjánsson, 8. þm. Norðvest.
  20. Guðlaugur Þór Þórðarson, 1. þm. Reykv. n.
  21. Gunnar Hrafn Jónsson, 7. þm. Reykv. s.
  22. Gunnar Bragi Sveinsson, 2. þm. Norðvest.
  23. Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n.
  24. Hanna Katrín Friðriksson, 5. þm. Reykv. s.
  25. Haraldur Benediktsson, 1. þm. Norðvest.
  26. Jón Gunnarsson, 6. þm. Suðvest.
  27. Jón Þór Ólafsson, 3. þm. Suðvest.
  28. Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest.
  29. Jóna Sólveig Elínardóttir, 9. þm. Suðurk.
  30. Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n.
  31. Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykv. s.
  32. Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðaust.
  33. Lilja Alfreðsdóttir, 9. þm. Reykv. s.
  34. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvest.
  35. Logi Már Einarsson, 9. þm. Norðaust.
  36. Nichole Leigh Mosty, 10. þm. Reykv. s.
  37. Njáll Trausti Friðbertsson, 4. þm. Norðaust.
  38. Oddný G. Harðardóttir,10. þm. Suðurk.
  39. Óli Björn Kárason, 8. þm. Suðvest.
  40. Ólöf Nordal, 1. þm. Reykv. s.
  41. Óttarr Proppé, 7. þm. Suðvest.
  42. Pawel Bartoszek, 11. þm. Reykv. s.
  43. Páll Magnússon, 1. þm. Suðurk.
  44. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  45. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust.
  46. Sigríður Á. Andersen, 8. þm. Reykv. s.
  47. Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk.
  48. Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurk.
  49. Smári McCarthy, 4. þm. Suðurk.
  50. Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðaust.
  51. Steinunn Þóra Árnadóttir, 6. þm. Reykv. n.
  52. Svandís Svavarsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  53. Teitur Björn Einarsson, 7. þm. Norðvest.
  54. Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þm. Suðvest.
  55. Unnur Brá Konráðsdóttir, 8. þm. Suðurk.
  56. Valgerður Gunnarsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  57. Vilhjálmur Árnason, 5. þm. Suðurk.
  58. Vilhjálmur Bjarnason, 11. þm. Suðvest.
  59. Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 4. þm. Suðvest.
  60. Þorsteinn Víglundsson, 5. þm. Reykv. n.
  61. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 4. þm. Norðvest.
  62. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 10. þm. Suðvest.
  63. Þórunn Egilsdóttir, 5. þm. Norðaust.

Strengjakvartett flutti Intermezzo eftir Atla Heimi Sveinsson.


Forseti Íslands setur þingið.

[14:10]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 12. september.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.


Ávarp forseta Alþingis.

[14:22]

Horfa

Forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðsdóttir, ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14:34.

---------------