Ferill 95. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 158  —  95. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um ferðakostnað ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum?

    Kostnaður ráðuneytisins vegna ferða utanríkisráðherra á tímabilinu janúar til loka september 2017 er 5.835.258 kr. vegna utanlandsferða, en enginn kostnaður hefur fallið til á tímabilinu vegna ferða innan lands.