Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 172  —  87. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um ferðakostnað ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum?

    Samanlagður kostnaður af ferðum ráðherra er 1.189.375 kr. og skiptist hann þannig að 102.333 kr. eru vegna ferða innan lands og 1.087.042 kr. vegna ferða erlendis.