Ferill 94. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 175  —  94. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um ferðakostnað ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum?

    Heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra á tímabilinu 11. janúar – 11. október 2017 nemur alls um 1.187.004 kr. sem skiptist þannig að kostnaður vegna ferða innan lands er alls 263.118 kr. og vegna ferða erlendis 923.886 kr. Kostnaður vegna þeirra starfsmanna sem voru í fylgd með ráðherra, hafi einhverjir verið, er ótalinn í svarinu.