Ferill 91. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 189  —  91. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um ferðakostnað ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum?

    Heildarkostnaður mennta- og menningarmálaráðuneytisins vegna ferða ráðherra á tímabilinu frá janúar 2017 til 27. september 2017 nemur samtals 1.970.487 kr. Ferðakostnaður vegna innanlandsferða er samtals 657.840 kr. og kostnaður vegna utanlandsferða er samtals 1.312.647 kr.