Ferill 84. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 84  —  84. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um tæknifrjóvganir og greiðsluþátttöku.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.


     1.      Hvað líður endurskoðun á reglum um greiðsluþátttöku ríkisins í tæknifrjóvgunarmeðferðum sem heilbrigðisráðherra var falin með þingsályktun nr. 58/145? Er endurskoðun á gjaldskrá hafin? Ef svo er, hvenær er gert ráð fyrir að henni ljúki? Ef svo er ekki, hver er þá skýringin?
     2.      Hver er stefna ráðherra um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í tæknifrjóvgunarmeðferðum?


Skriflegt svar óskast.