Fundargerð 148. þingi, 2. fundi, boðaður 2017-12-14 19:30, stóð 19:34:09 til 22:17:59 gert 14 22:31
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

fimmtudaginn 14. des.,

kl. 7.30 síðdegis.

Dagskrá:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:34]

Horfa

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað fimmtudaginn 14. desember 2017 kl. 19:30. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 16 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 9 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 5 mínútur hver og í þriðju umræðu 4 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Vinstrihreyfingin -- grænt framboð, Samfylkingin, Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð voru Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og í þriðju umferð Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þingmaður Norðausturkjördæmis, í annarri Helga Vala Helgadóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og Guðmundur Andri Thorsson, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Miðflokkinn voru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Birgir Þórarinsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Ásmundur Friðriksson, 4. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Pírata töluðu Halldóra Mogensen, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Jón Þór Ólafsson, 8. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Flokk fólksins töluðu Inga Sæland, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Ólafur Ísleifsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð, og Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju.

Ræðumenn Viðreisnar voru í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Þorsteinn Víglundsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri og í þriðju umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fundi slitið kl. 22:17.

---------------